Samningur við Rafskútuleiguna Hopp handsalaður. Ljósm. sá

Hoppað um Hólminn

Í gær, á sumardaginn fyrsta, skrifaði Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson bæjarstjóri Sveitarfélagsins Stykkishólms undir samstarfsyfirlýsingu um stöðvalausa rafskútuleigu í Stykkishólmi. Rafskútuleigan Hopp hóf í framhaldinu þjónustu sína í Stykkishólmi. Hopp býður upp á skammtímaleigu á rafskútum/rafdrifnum hlaupahjólum. Markmið sveitarfélagsins með þessu er að auðvelda íbúum og gestum að komast ferða sinna með umhverfisvænum hætti. Að lokinni undirskrift hoppaði bæjarstjórinn á hjól og tók stuttan rúnt í tilefni dagsins.

Hoppað um Hólminn - Skessuhorn