
Rútubílsstjóri hugðist stytta sér leið með hörmulegum afleiðingum
Eftir hádegið á síðasta vetrardag varð alvarlegt umferðarslys í Skagafirði. Ökumaður hópferðabifreiðar, með 13 erlenda ferðamenn auk íslensks leiðsögumanns um borð, hugðist stytta sér leið og ók yfir gamla trébrú sem liggur yfir Húseyjarkvísl, skammt frá Saurbæ í Skagafirði, með þeim afleiðingum að brúin gaf sig og rútan skall á hliðina niður í ána. Talið er að rútan hafi verið um fimmtán tonnum þyngri en leyfulegur hámarksþungi á brúnni, sem er fimm tonn. Þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang var rútan á hliðinni ofan í ánni. Um fimmtíu manns komu að björgunaraðgerðum á vettvangi, en auk lögreglu tók slökkvilið, björgunarsveitarfólk og starfsfólk RKÍ þátt í þeim. Fréttavefur RÚV greinir frá því að fimm sem voru í rútunni hafi verið lagðir inn á Sjúkrahúsið á Akureyri. Fólkið hlaut misalvarlega áverka en enginn var lífshættulega slasaður.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa fer með rannsókn á tildrögum slyssins.
Landsbjörg sendi meðfylgjandi myndir á fjölmiðla í ljósi þess að björgunarsveitir í Skagafirði voru kallaðar út til aðstoðar. Myndirnar voru teknar eftir að búið var að flytja farþega úr rútunni til aðhlynningar á sjúkrahús en aðra í hús Flugbjörgunarsveitarinnar í Varmahlíð.


