
Samfélagið, kyrrðin og rafræn skilríki það besta við Ísland
Miroslav Honek er fæddur í 8.000 manna smábæ í Tékklandi þar sem hann m.a. kynntist núverandi eiginkonu sinni og barnsmóður, Elisku. Þau fluttu ung til borgarinnar Budweis þar sem þau fóru að vinna með manni sem hafði nýverið snúið heim frá Íslandi en sá hafði starfað í tvö ár á Hellnum á Snæfellsnesi. Ævintýraþrá hafði kviknað hjá Miroslav og Elisku sem vildu leita á ný mið og hófu þess vegna að sækja um störf á Snæfellsnesi eftir heillandi lýsingar frá manni þessum. Nokkrum vikum síðar voru þau bæði komin með starf á veitingahúsinu Bjargarsteini Mathúsi í Grundarfirði þar sem Miroslav starfar enn sem kokkur. Í dag hefur parið búið í Grundarfirði í sex ár, þau eiga saman eins árs son, Oliver, og festu nýverið kaup á húsi í bænum. Blaðamaður leit í heimsókn til Miroslavs sem furðaði sig reyndar á áhuga blaðamanns á sinni sögu.