
Jörvagleði í Dölum hefst í dag
Jörvagleði, lista- og menningarhátíð Dalabyggðar, verður sett klukkan 19:30 í dag, síðasta vetrardag, í Árbliki í Miðdölum. Á setningarathöfninni verður meðal annars fjallað um Ásmund Sveinsson myndhöggvara, fagnað 25 ára afmæli Glímufélags Dalamanna og hlítt á sögur og söng.
Fjölbreyttir viðburðir eru á dagskrá Jörvagleðinnar í ár sem nær út sunnudaginn. Má þar nefna málverkasýningar og listasmiðjur, barnaskemmtanir og skátafjör, tónleika, leiksýningu, pubquiz, víðavangshlaup, kótilettukvöld, vetrarleika hestamannafélagsins Glaðs og ball með Meginstreymi.
Þetta er í 24. sinn sem hátíðin er haldin í þessari mynd og er hún jafnan vel sótt af heimamönnum og brottfluttum.
Á laugardaginn síðasta var forskot tekið á sæluna þegar Þorrakórinn bauð til 60 ára afmælistónleika í félagsheimilinu að Staðarfelli. Harmonikkufélagið Nikkólína spilaði þar nokkur lög og Þorrakórinn söng saman og í sitthvoru lagi sem karlakórinn Frosti og kvennakórinn Funi. Söngdagskráin var því verulega fjölbreytt. Fullt var út úr dyrum og eftir því sem blaðamaður kemst næst var ýkt fjör og geggjað gaman.

