Fréttir

true

Borgarbyggð gerir samning við Símenntun á Vesturlandi

Borgarbyggð hefur gert samstarfssamning við Símenntun á Vesturlandi um þjónustu á innleiðingu fræðsluáætlunar, gerð nýliðafræðslu og rafrænnar fræðslu á kennslukerfi fyrir Borgarbyggð. Um er að ræða stórt og mikilvægt skref hjá sveitarfélaginu í fræðslumálum. Þetta kemur fram á heimasíðu Borgarbyggðar en verkefnastjóri símenntunar mun skipuleggja fræðslu sem verður á dagskrá samkvæmt fræðsluáætlun á árunum 2023…Lesa meira

true

Riða komin upp í Vestur-Húnavatnssýslu

Matvælastofnun hefur gefið út tilkynningu þess efnis að riða hefur greinst á bænum Bergsstöðum í Vestur-Húnavatnssýslu. Unnið er að undibúningi aðgerða vegna smitsins. Kindur á Bergsstöðum fóru að sýna einkenni riðu í síðustu viku en bændur höfðu þá samband við Matvælastofnun. Smitið var staðfest eftir að starfsfólk Matvælastofnunnar tók sýni sem sent var til greiningar…Lesa meira

true

Magnea Þórey formaður undirbúningsstarfshóps Jaðarsbakkasvæðis

„Í viljayfirlýsingu Akraneskaupstaðar, Ísoldar fasteignafélags, ÍA og KFÍA, um uppbyggingu á Jaðarsbökkum er lögð áhersla á vandaða greiningu og stefnumörkun í ferðamálum á Jaðarsbakkasvæðinu. Þessi stefnumótunarvinna fyrir svæðið verður síðan nýtt áfram af hálfu Akraneskaupstaðar inn í vinnu við að móta heildstæða stefnu í ferðamálum fyrir sveitarfélagið sem ekki er til í dag. Markmiðið með…Lesa meira

true

Var ungur byrjaður að hanna hús fyrir huldufólk

Sigursteinn Sigurðsson starfar í dag sem arkitekt og er menningar- og velferðarfulltrúi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Hann er fæddur á Akranesi en ólst upp í Borgarnesi. Uppeldisárunum eyddi hann þó að mestu á ættaróðalinu að Álftártungu á Mýrum. ,,Ég bjó aldrei á Mýrunum en segist alltaf vera Mýramaður,“ segir Sigursteinn í Skinkuhorni vikunnar. ,,Matthildur frænka…Lesa meira

true

Snæfell úr leik eftir tap gegn Þór Akureyri í mögnuðum leik

Það var ljóst eftir tap Snæfells á móti Þór Akureyri á föstudagskvöldið að Snæfellskonur máttu ekki misstíga sig í leik Snæfells og Þórs sem fram fór í Stykkishólmi í gærkvöldi. Með sigri hefði Snæfell jafnað metin í 2-2 í einvíginu um sæti í Subway deild kvenna í körfuknattleik á næsta tímabili og úrslitaleikur því í…Lesa meira

true

Deiliskipulagstillaga vegna Skipavíkur verður tekin fyrir á aukafundi

Á fundi bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Stykkishólms 30. mars sl. var lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir hafnarsvæðið við Skipavík, ásamt greinargerð en sömuleiðis voru lagðar fram afgreiðslur 8. fundar skipulagsnefndar og 3. fundar hafnarstjórnar til staðfestingar, sem staðfestar voru á 9. fundi bæjarráðs, 21. mars. Óeining er um deiliskipulagstillöguna í bæjarstjórn sem staðfesti með fjórum atkvæðum…Lesa meira

true

Næst umfangsmestu rýmingaraðgerðir sögunnar

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, heimsóttu Neskaupstað í gær ásamt fulltrúum Ofanflóðasjóðs og almannavarna Ríkislögreglustjóra. Ráðherrarnir kynntu sér ummerki snjóflóðanna sem féllu dagana á undan en ljóst má vera að tjón er umtalsvert. Í heild hafa um 850 manns þurft að yfirgefa heimili sín á Austurlandi og um 150…Lesa meira

true

Yfirlýsing frá foreldrum og forráðamönnum barna við Laugargerðisskóla

„Frá því okkur barst tölvupóstur frá oddvita Eyja- og Miklaholtshrepps 21. febrúar um fyrirhugaða lokun Laugargerðisskóla höfum við foreldrar unnið mikla vinnu til þess að geta haldið skólastarfinu áfram. Helstu rökin fyrir að halda skóla á svæðinu eru þau að langt er að fara í aðra skóla fyrir sum börnin á svæðinu sem og sú…Lesa meira

true

Fjallað um Hafnarfjall og Kilimanjaro á aðalfundi

Aðalfundur Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs var haldinn í Hjálmakletti í Borgarnesi síðastliðinn miðvikudag. Vel var mætt á fundinn líkt og flesta viðburði á vegum félagsins hingað til. Í skýrslu stjórnar kom fram að mörg verkefni eru í gangi á vegum félagsins varðandi uppbyggingu gönguleiða. Meðal annars er unnið að því að koma upp útsýnisskífu á Hafnarfjalli og…Lesa meira

true

Kári eina liðið af Vesturlandi sem komst áfram í Mjólkurbikarnum um helgina

Fjögur knattspyrnulið í karlaflokki af Vesturlandi léku í 1. umferð Mjólkurbikarsins um helgina. Kári tók á móti liði Léttis á föstudagskvöldið og var leikurinn í Akraneshöllinni. Kári sem leikur í þriðju deild í sumar var aldrei í vandræðum á móti Létti sem leikur tveimur deildum neðar og heimamenn unnu stórsigur, 5-0. Sigurjón Logi Bergþórsson skoraði…Lesa meira