
Magnea Þórey formaður undirbúningsstarfshóps Jaðarsbakkasvæðis
„Í viljayfirlýsingu Akraneskaupstaðar, Ísoldar fasteignafélags, ÍA og KFÍA, um uppbyggingu á Jaðarsbökkum er lögð áhersla á vandaða greiningu og stefnumörkun í ferðamálum á Jaðarsbakkasvæðinu. Þessi stefnumótunarvinna fyrir svæðið verður síðan nýtt áfram af hálfu Akraneskaupstaðar inn í vinnu við að móta heildstæða stefnu í ferðamálum fyrir sveitarfélagið sem ekki er til í dag. Markmiðið með stefnumörkun vegna verkefnisins er að uppbyggingin á svæðinu stuðli að aukinni ferðaþjónustu á Akranesi, auki aðdráttarafl bæjarins og styrki um leið innviði og lífsgæði fyrir heimafólk,“ segir í tilkynningu frá Akraneskaupstað.