
Yfirlýsing frá foreldrum og forráðamönnum barna við Laugargerðisskóla
„Frá því okkur barst tölvupóstur frá oddvita Eyja- og Miklaholtshrepps 21. febrúar um fyrirhugaða lokun Laugargerðisskóla höfum við foreldrar unnið mikla vinnu til þess að geta haldið skólastarfinu áfram. Helstu rökin fyrir að halda skóla á svæðinu eru þau að langt er að fara í aðra skóla fyrir sum börnin á svæðinu sem og sú góða þjónusta sem börnunum hefur verið veitt í Laugargerðisskóla. Lögð hefur verið áhersla á einstaklingsmiðað nám og sjálfstæð vinnubrögð við skólann sem hefur skilað sér í góðum árangri nemanda þegar í framhaldsskóla er komið.
Ljóst er að ákvörðun sveitarstjórnar núna mun þýða miklar breytingar fyrir börnin okkar, fyrir sum mikill skólaakstur og algerlega nýtt umhverfi sem við vitum ekki hvernig þau bregðast við. Kom fram hjá sveitarstjórnarmönnum á fundi með foreldrum að ekki eigi að skerða þjónustuna, heldur verði hún aukin.
Af þeim samtölum sem við höfum náð við sveitarstjórn höfum við ekki fengið skýra mynd af hvað tekur við. Þó hefur komið fram að tveir skólabílar með skólaliðum verði í bílunum til aðstoðar þar sem og í skólunum. Við útboð verða gerðar kröfur til þess að bílarnir verði búnir fjarskiptabúnaði sem hægt er að nota allsstaðar á leiðinni og einnig fjórhjóladrifnir. Þetta er jákvætt en ljóst er samt af vegalengdum að ólíklegt er að þau sem lengst eiga í skólann verða undir 60 mín. í hvorri ferð með þeim stoppum sem verða. Foreldrar hafa miklar áhyggjur af þessu sem og mismunandi tímum sem skóla lýkur eftir aldri barna í Stykkishólmi og hvernig það verður útfært miðað við reglur um skólabílaakstur. Þó við höfum kallað eftir útskýringum á því höfum við ekki fengið þær. Einnig höfum við ekki fengið samtal við skólann í Stykkishólmi ennþá til að fá útskýringar á mörgum hlutum sem við höfum áhyggjur af.
Áhyggjur foreldra snúast einnig að þeim áhrifum á samfélagið sem slíkar ákvarðanir hafa í för með sér. En eins og víða hefur gerst með lokun skóla, þá fækkar íbúum og nýliðun verður erfiðari.
Snemma í ferlinu kom upp sú hugmynd að kaupa eignirnar í Laugargerði og hefja vinnu við að byggja upp sjálfstætt starfandi grunnskóla og þar með öflugt skólasamfélag þar í kring með það að markmiði að laða að fjölskyldufólk í sveitina. Með því myndi fjölga íbúum í samfélaginu sem yrði þá sterkara um leið og börnum myndi fjölga í skólanum.
Sveitarstjórn hélt opinn fund að Breiðabliki 28. mars um skólamál. Vel var mætt á fundinn og góðar umræður sem allar voru á þá veru að fólk vildi halda skólastarfi í samfélaginu. Þegar menn lesa slíkan fund myndi maður halda að næsta skref yrði hjá sveitarstjórn að ræða málin betur við foreldra og fyrir sveitarstjórn Stykkishólms að bíða með frekari viðræður að svo stöddu.
Þar sem tíminn er okkur dýrmætur í þeirri vinnu sem við erum í, lögðum við fram eftirfarandi:
Við gerum sveitarfélaginu tilboð um að kaupa eignirnar á kr. 95 miljónir með fyrirvara um að við þekkjum ekki það sem stendur í skýrslum Vinnueftirlitsins, byggingarfulltrúa sem og úttekt á útisvæði. Einnig leggjum við til umræðugrundvöll upp á kr. 3.900.000 fyrir hvert barn skólaveturinn.
Ekki er langt síðan Eyja- og Miklaholtshreppur keypti helminginn í eignunum í Laugargerði á 32,5 milljónir og var því verðmat á eignunum 2018 kr. 65 milljónir.
Teljum við að með þessu fyrirkomulagi myndi nást sátt í samfélaginu um skólamál inn í framtíðina sem hlýtur að vera samfélaginu mikilvægt.
Er það von okkar að sveitarfélagið bregðist fljótt við og ræði við okkur þannig að við getum hafið undirbúning að uppbyggingu á skólasvæðinu sem og opnum grunnskóla þar strax í haust.“
Foreldrar og forráðamenn barna í Laugargerðisskóla.