Fréttir

true

Móttökupakki fyrir nýja íbúa Borgarbyggðar

Síðasta mánudag hófst nýtt verkefni í Borgarbyggð sem hefur verið í bígerð allt frá því á síðasta ári og hefur nú litið dagsins ljós. Nú fá allir nýir íbúar Borgarbyggðar afhentan móttökupakka en markmið móttökupakkans er fyrst og fremst að bjóða nýja íbúa velkomna í sveitarfélagið. „Það er alltaf ánægjulegt þegar það fjölgar í samfélaginu…Lesa meira

true

Melló sýnir söngleikinn Hlið við hlið í Bíóhöllinni

Leiklistaklúbburinn Melló í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi frumsýnir söngleikinn Hlið við hlið laugardaginn 15. apríl næstkomandi í Bíóhöllinni. Söngleikurinn er byggður á lögum eins vinsælasta söngvara landsins, Friðriks Dórs. Hlið við hlið fjallar um borgarstrákinn Dag sem fær sumarvinnu á sveitahóteli þar sem allt er eins og það hefur verið í áraraðir. En koma hans…Lesa meira

true

Heiðar Örn nýr slökkviliðsstjóri í Borgarbyggð

Heiðar Örn Jónsson hefur tekið við sem slökkviliðsstjóri Borgarbyggðar, en þær breytingar áttu sér stað 1. apríl síðastliðinn. Heiðar Örn var áður aðstoðarslökkviliðsstjóri og eldvarnareftirlitsmaður hjá Borgarbyggð. Bjarni Kristinn Þorsteinsson fyrrum slökkviliðsstjóri Borgarbyggðar verður þá um leið varaslökkviliðsstjóri og verkefnisstjóri. „Ég er afskaplega ánægður með þessa ákvörðun. Sjálfur verð ég 64 ára í júní og…Lesa meira

true

Viktor vann einmenning Bridgefélags Borgarfjarðar

Einmenningskeppni Bridgefélags Borgarfjarðar var haldin í Logalandi í gærkvöldi. Alls voru 20 spilarar mættir til leiks og menn spenntir fyrir kvöldinu. Sigurvegari kvöldsins var Skagamaðurinn Viktor Björnsson sem var með 67,2% skor, í öðru sæti var Jóhann Oddsson á Steinum með 63,5% og skammt á eftir í þriðja sætinu var Baldur Björnsson í Múlakoti með…Lesa meira

true

Fimm Grunnskólameistaratitlar í Dalina um liðna helgi

Grunnskólamót í glímu fór fram sunnudaginn 2. apríl síðastliðinn að Laugum í Sælingsdal. Mótið var fámennt en skemmtilegt og að sögn Guðbjartar Lóu Þorgrímsdóttur, þjálfara Glímufélags Dalamanna, áttu allir góða stund saman inni að Laugum en keppendur komu frá Dalabyggð, Njarðvík og Reyðarfirði. Keppendur Dalabyggðar stóðu sig með prýði og komu fimm Grunnskólameistaratitlar heim í…Lesa meira

true

Skallagrímur í kjörstöðu eftir sigur á Sindra

Skallagrímur og Sindri mættust í gærkvöldi í öðrum leik í undanúrslitum úrslitakeppni 1. deildar karla í körfuknattleik og var leikurinn í Fjósinu í Borgarnesi. Næstum þrjú hundruð manns voru mættir á leikinn og stemningin í stúkunni eins og í þá gömlu góðu daga í den. Skallagrímsmenn nýttu meðbyrinn og voru með átta stiga forskot eftir…Lesa meira

true

Foreldrar sækja nú um fæðingarorlof með stafrænum hætti

Hátt í 90% verðandi foreldra sækja nú um fæðingarorlof með stafrænum hætti, segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Frá ársbyrjun 2022 hefur verið unnið að því að auðvelda foreldrum að sækja um fæðingarorlof en lengi hefur verið gagnrýnt að umsóknarferlið sé langt og flókið. Þá þurfti þar til fyrir örfáum árum að póstleggja umsóknina. Þá…Lesa meira

true

Lægsta tilboð 59,8% af áætluðum verktakakostnaði

Í mars voru tilboð opnuð hjá Vegagerðinni fyrir vetrarþjónustu á hinum ýmsu vegarköflum og svæðum fyrir árin 2023-2026. Áætlaður verktakakostnaður fyrir vetrarþjónustu í Dalabyggð á tímabilinu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið, eru 112 milljónir króna. Eitt tilboð barst í verkið, frá Kol ehf. í Búðardal. Það hljóðaði upp á 91,3 milljónir, eða sem nemur…Lesa meira

true

„Maður er alltaf að reyna að hjálpa til“

Þorsteinn Bjarki Pétursson er uppalinn í Geirshlíð í Flókadal og segist í grunninn vera sveitakall og vélamaður. Hann býr nú á Hvanneyri með eiginkonu sinni, Margréti Helgu Guðmundsdóttur, og dóttur þeirra, Rósu Guðrúnu, en þau fjölskyldan keyptu sér hús þar í lok síðasta árs. Þorsteinn Bjarki, sem allajafna er kallaður Bjarki, segir það versta við…Lesa meira

true

Fín tilþrif og búningar í Grímutölti

Grímutölt hestamannafélagsins Borgfirðings var haldið síðastliðið laugardagskvöld. Óhætt er að segja og mikið hafi verið um flotta hesta og magnaða búninga. Félagið vill koma þökkum til Borgarverks sem styrkti mótið, Nettó sem gaf keppendum í polla- og barnaflokki páskaegg og Lífland sem gaf verðlaun fyrir besta búning í yngri og eldri flokkum. Með glæsilegasti búning…Lesa meira