
Fín tilþrif og búningar í Grímutölti
Grímutölt hestamannafélagsins Borgfirðings var haldið síðastliðið laugardagskvöld. Óhætt er að segja og mikið hafi verið um flotta hesta og magnaða búninga. Félagið vill koma þökkum til Borgarverks sem styrkti mótið, Nettó sem gaf keppendum í polla- og barnaflokki páskaegg og Lífland sem gaf verðlaun fyrir besta búning í yngri og eldri flokkum. Með glæsilegasti búning í yngri flokkum var Svandís Svava Halldórsdóttir og með glæsilegasta búning í eldri flokkum var Guðrún Fjeldsted. Þetta er áreiðanlega í fyrsta skipti sem einhver hefur riðið í keppni á Vesturlandi með veiðstöng meðferðis.
Helstu úrslit:
Barnaflokkur
Nr. 1. Svandís Svava Halldórsdóttir og Straumur frá Steindórsstöðum 8,22
Nr. 2. Kristján Fjeldsted og Dimma frá Ferjukoti 8,13
Nr. 3. Heiðrún Inga Jóngeirsdóttir 7,92
Unglingaflokkur
Nr. 1. Kolbrún Katla Halldórsdóttir og Hervar frá Snartartungu 8,26
Nr. 2. Katrín Einarsdóttir og Drangur frá Efsta Dal 8,14
Nr. 3. Aþena Brák Björgvinsdóttir og Strumpur frá Skjólbrekku.
Þriðji flokkur
Nr. 1. Þóra Árnadóttir og Hulinn frá Sauðafelli 8,24
Nr. 2. Steinunn Brynja Hilmarsdóttir og Blika frá Skjólbrekku 7,97
Nr. 3. Marieke Urlings og Stúlka frá Sturlu Reykjum 7,82
Annar flokkur
Nr. 1. Arna Hrönn Ámundadóttir og Hrafn frá Smáratúni 8,38
Nr. 2. Hera Hrönn Hafsteinsdóttir og Tónn frá Valstrýtu 8,33
Flokkur 50+
Nr. 1. Guðrún Fjeldsted og Polki frá Ósi 8,38
Nr. 2. Marteinn Valdimarsson og Nökkvi frá Hvítárvöllum 8,24
Fyrsti flokkur
Nr. 1. Halldór Sigurðsson og Týr frá Kópavogi 8,66
Nr. 2. Iðunn Svansdóttir og Fleygur frá Snartartungu 8,60
Nr. 3. Þórdís Fjeldsted og Skör frá Kletti 8,52
Nr. 4. Heiðar Árni Baldursson og Fluga frá Gullberastöðum 8,42
Nr. 5. Heiða Dís Fjeldsted og Hrafn frá Ferjukoti 8,42.
