
Skallagrímur í kjörstöðu eftir sigur á Sindra
Skallagrímur og Sindri mættust í gærkvöldi í öðrum leik í undanúrslitum úrslitakeppni 1. deildar karla í körfuknattleik og var leikurinn í Fjósinu í Borgarnesi. Næstum þrjú hundruð manns voru mættir á leikinn og stemningin í stúkunni eins og í þá gömlu góðu daga í den. Skallagrímsmenn nýttu meðbyrinn og voru með átta stiga forskot eftir um fimm mínútna leik, 19:11. Mestur var munurinn þrettán stig undir lok fyrsta leikhluta en gestirnir settu niður síðustu fimm stigin og staðan 33:25 fyrir Skallagrími. Sindramenn héldu áfram að þrýsta á heimamenn í öðrum leikhluta og höfðu náð að jafna um miðja vegu, staðan 41:41. En eftir það spýttu Skallarnir smá í og höfðu sex stig á Sindra í hálfleik, 49:43, og ljóst að áhorfendur gætu áttu von á skemmtilegum seinni hálfleik.