Þorsteinn Bjarki Pétursson byrjaði að kenna á bíl í Borgarbyggð í desember 2021. Hér er hann fyrir utan heimili sitt á Hvanneyri. Ljósm. gbþ

„Maður er alltaf að reyna að hjálpa til“

Þorsteinn Bjarki Pétursson er uppalinn í Geirshlíð í Flókadal og segist í grunninn vera sveitakall og vélamaður. Hann býr nú á Hvanneyri með eiginkonu sinni, Margréti Helgu Guðmundsdóttur, og dóttur þeirra, Rósu Guðrúnu, en þau fjölskyldan keyptu sér hús þar í lok síðasta árs. Þorsteinn Bjarki, sem allajafna er kallaður Bjarki, segir það versta við Hvanneyri vera að hann finni ekkert vont við að vera þar og vanti því rök til að flytja fjölskylduna í alvöru sveit. Bjarki er áberandi í samfélaginu og er einkar viðkunnanlegur, duglegur og bóngóður. Hann er virkur félagi í Björgunarsveitinni Ok og starfar í slökkviliði Borgarbyggðar þar sem hann reynir eftir fremsta megni að taka þátt í útköllum og fær blaðamaður það á tilfinninguna að ekkert sé honum mikilvægara en að hjálpa fólki sem þarfnast hjálpar.

„Maður er alltaf að reyna að hjálpa til“ - Skessuhorn