Heiðar Örn og kona hans Selma Ágústsdóttir. Ljósm. borgarbyggd.is

Heiðar Örn nýr slökkviliðsstjóri í Borgarbyggð

Heiðar Örn Jónsson hefur tekið við sem slökkviliðsstjóri Borgarbyggðar, en þær breytingar áttu sér stað 1. apríl síðastliðinn. Heiðar Örn var áður aðstoðarslökkviliðsstjóri og eldvarnareftirlitsmaður hjá Borgarbyggð. Bjarni Kristinn Þorsteinsson fyrrum slökkviliðsstjóri Borgarbyggðar verður þá um leið varaslökkviliðsstjóri og verkefnisstjóri.

Heiðar Örn nýr slökkviliðsstjóri í Borgarbyggð - Skessuhorn