Keppendur úr GFD komu klyfjaðir heim af mótinu. Auk þeirra eru á myndinni eru Títas Baltrimas grunnskólameistari 6. bekk drengja, Lija Baltrimaite í 3. sæti 6. bekk stúlkna og Taiga Baltrimaite grunnskólameistari 7. bekk stúlkna. Þau kepptu fyrir hönd Njarðvíkurskóla en fengu að nota búninga og belti frá Dalamönnum.

Fimm Grunnskólameistaratitlar í Dalina um liðna helgi

Grunnskólamót í glímu fór fram sunnudaginn 2. apríl síðastliðinn að Laugum í Sælingsdal. Mótið var fámennt en skemmtilegt og að sögn Guðbjartar Lóu Þorgrímsdóttur, þjálfara Glímufélags Dalamanna, áttu allir góða stund saman inni að Laugum en keppendur komu frá Dalabyggð, Njarðvík og Reyðarfirði.

Keppendur Dalabyggðar stóðu sig með prýði og komu fimm Grunnskólameistaratitlar heim í Dalina eftir mótið. Strax að loknu Grunnskólamóti fór fram svokallað Höfðingjamót, áður Öldungamót. Þar þurfa keppendur að hafa náð 30 ára aldri. Segir Guðbjört Lóa að það hafi einnig verið mjög skemmtilegt en margir voru þar að keppa í fyrsta skipti í mörg ár og sumir í fyrsta skipti á sinni ævi. Góð stemning var í húsinu og að loknu móti fóru margir í sund en auka opnun var í lauginni þennan daginn.

Úrlit keppenda úr GFD voru með þessum hætti:

Ólafur Oddur Jónsson, Grunnskólameistari í 10. bekk drengja

Benóní Meldal Kristjánsson, Grunnskólameistari í 9. bekk drengja

Þórarinn Páll Þórarinsson, Grunnskólameistari í 8. bekk drengja

Guðmundur Sören Vilhjálmsson, Grunnskólameistari í 7. bekk drengja

Alexandra Agla Jónsdóttir, Grunnskólameistari 8. bekk stúlkna

Aðalheiður Rós Unnsteinsdóttur, 2. sæti í 6. bekk stúlkna

Meðal þátttakenda í Höfðingjamótinu voru þessir höfðingjar.

Fimm Grunnskólameistaratitlar í Dalina um liðna helgi - Skessuhorn