Hluti leikhópsins sem kemur að sýningunni. Ljósm. vaks

Melló sýnir söngleikinn Hlið við hlið í Bíóhöllinni

Leiklistaklúbburinn Melló í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi frumsýnir söngleikinn Hlið við hlið laugardaginn 15. apríl næstkomandi í Bíóhöllinni. Söngleikurinn er byggður á lögum eins vinsælasta söngvara landsins, Friðriks Dórs. Hlið við hlið fjallar um borgarstrákinn Dag sem fær sumarvinnu á sveitahóteli þar sem allt er eins og það hefur verið í áraraðir. En koma hans virðist þrýsta á tengslin innan hótelsins að þolmörkum - skyndilega er sem öll fjölskyldutengsl, sambönd og vinskapir hangi á bláþræði. Söngleikurinn var fyrst settur upp í Gamla bíói árið 2021 og var leikstýrt af Höskuldi Þór Jónssyni sem skrifaði handritið ásamt Berglindi Öldu Ástþórsdóttur.

Melló sýnir söngleikinn Hlið við hlið í Bíóhöllinni - Skessuhorn