Byrjunarlið Kára gegn Létti í leiknum á laugardaginn. Ljósm. FB síða Kára

Kári eina liðið af Vesturlandi sem komst áfram í Mjólkurbikarnum um helgina

Fjögur knattspyrnulið í karlaflokki af Vesturlandi léku í 1. umferð Mjólkurbikarsins um helgina. Kári tók á móti liði Léttis á föstudagskvöldið og var leikurinn í Akraneshöllinni. Kári sem leikur í þriðju deild í sumar var aldrei í vandræðum á móti Létti sem leikur tveimur deildum neðar og heimamenn unnu stórsigur, 5-0. Sigurjón Logi Bergþórsson skoraði á níundu mínútu fyrir Kára og undir lok fyrri hálfleiks bættu þeir Nikulás Ísar Bjarkason og Hafþór Pétursson við tveimur mörkum, staðan 3-0 fyrir Kára í hálfleik.

Kári eina liðið af Vesturlandi sem komst áfram í Mjólkurbikarnum um helgina - Skessuhorn