Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.

Riða komin upp í Vestur-Húnavatnssýslu

Matvælastofnun hefur gefið út tilkynningu þess efnis að riða hefur greinst á bænum Bergsstöðum í Vestur-Húnavatnssýslu. Unnið er að undibúningi aðgerða vegna smitsins. Kindur á Bergsstöðum fóru að sýna einkenni riðu í síðustu viku en bændur höfðu þá samband við Matvælastofnun. Smitið var staðfest eftir að starfsfólk Matvælastofnunnar tók sýni sem sent var til greiningar að tilraunastöð HÍ að Keldum. Um 690 kindur eru á bænum og verður þeim nú lógað við fyrsta tækifæri. Frekari rannsókn mun fara fram á smitinu og rakið hvert kindur af bænum hafa verið fluttar.

Bærinn er í Miðfjarðarhólfi en riða hefur aldrei greinst í því og það því fallið undir skilgreininguna ósýkt svæði, sbr. reglugerð um útrýmingu á riðuveiki. Vegna þessarar greiningar er hólfið nú skilgreint sem sýkt svæði. Miðfjarðarhólf liggur að afrétti Borgfirðinga á Arnarvatnsheiði.

Sú megin breyting sem það hefur í för með sér er að óheimilt er að flytja sauðfé til lífs milli hjarða í hólfinu og hvaðeina annað sem borið getur smitefni milli staða, svo sem hey, heyköggla, hálm, húsdýraáburð, túnþökur og gróðurmold. Enn fremur er óheimilt að hýsa aðkomufé, fóðra það eða brynna því með heimafé.

Riða komin upp í Vestur-Húnavatnssýslu - Skessuhorn