Í síðustu gönguferð var fræðst um Hvítárvelli og Ferjukot. Hér er Heba Magnúsdóttir að fræða hópinn. Ljósm. ge.

Fjallað um Hafnarfjall og Kilimanjaro á aðalfundi

Aðalfundur Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs var haldinn í Hjálmakletti í Borgarnesi síðastliðinn miðvikudag. Vel var mætt á fundinn líkt og flesta viðburði á vegum félagsins hingað til. Í skýrslu stjórnar kom fram að mörg verkefni eru í gangi á vegum félagsins varðandi uppbyggingu gönguleiða. Meðal annars er unnið að því að koma upp útsýnisskífu á Hafnarfjalli og merkja hina sjö tinda fjallsins. Þá er áfram unnið að uppbyggingu Vatnaleiðar og hönnun útivistarsvæðis á Englandi í Lundarreykjadal, í tengslum við gönguleiðir á svæðinu. Þá er verið að undirbúa gerð Borgarfjarðarbrautar en það er vinnuheitið á fimm daga gönguleið um uppsveitir héraðsins.

Fjallað um Hafnarfjall og Kilimanjaro á aðalfundi - Skessuhorn