
Krakkarnir sem æfðu blak með Ungmennafélagi Grundarfjarðar síðasta vetur brugðu á leik síðasta mánudag þegar þau héldu svokallað 80‘s partý. Þá var hárið túberað og fundinn til skrautlegur fatnaður sem væntanlega hefur legið aftarlega í fataskápum í Grundarfirði og útkoman varð hin skrautlegasta. Krakkarnir skemmtu sér að minnsta kosti afskaplega vel yfir uppátækinu.Lesa meira








