{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Fráfarandi sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti samhljóða á síðasta fundi sínum að staðfesta fyrir sitt leyti umsókn Apóteks Vesturlands um nýtt lyfsöluleyfi í Borgarnesi. Ólafur Adolfsson, lyfjafræðingur og eigandi Apóteks Vesturlands, segir í samtali við Skessuhorn að nú bíði hann einungis eftir formlegri afgreiðslu Lyfjastofnunar á lyfsöluleyfi fyrir Borgarnes. Hann kveðst búinn að taka á leigu húsrými í Bónushúsinu við Digranesgötu 6, rými sem er milli Geirabakarís og verslunar Líflands. Hann kveðst fá húsnæðið afhent í síðasta lagi 1. ágúst næstkomandi. „Störf verða auglýst til umsóknar strax og lyfsöluleyfið liggur fyrir. Þarna stefnum við á að reka apótek sem verður opið alla daga vikunnar,“ segir Ólafur í samtali við Skessuhorn. Fyrir rekur fyrirtæki hans apótek á Akranesi og í Snæfellsbæ.\r\n\r\nÍ afgreiðslu sveitarstjórnar segir að ein lyfsala sé í Borgarbyggð og stutt á milli hennar og staðsetningar áætlaðrar lyfsölu. „Byggðarráð leggst ekki gegn veitingu leyfis Lyfjastofnunar til umsækjanda um nýtt lyfsöluleyfi,“ segir í fundargerð sem sveitarstjórn staðfesti. Þarna er vísað til þess að Lyfja rekur apótek í Hyrnutorgi í Borgarnesi. Nú mun því samkeppni aukast í lyfsölu í Borgarnesi.",
"innerBlocks": []
}