Steinunn fráfarandi formaður og Hrafnhildur Ólafsdóttir hjúkrunardeildarstjóri á fæðingadeild, en hún tók við gjafabréfi að tveimur nýjum sjúkrarúmum af gerðinni Eleganza-2. Ljósm. mm.

Hollvinasamtökin hafa safnað á annað hundrað milljónum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Aðalfundur Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofnunar Vesturlands var haldinn síðastliðinn fimmtudag. Á fundinum fór stjórn yfir starfsemina undanfarin þrjú ár, en vegna heimsfaraldurs hefur ekki verið hægt að halda með formlegum hætti tvo síðustu aðalfundi samtakanna. Félagið hefur þó haldið áfram starfsemi og samskiptin mest verið í gegnum tölvutækni og á smærri fundum. Þrátt fyrir Covid hefur þó félagið haldið áfram að safna fjármunum til að kaupa á ýmsum búnaði fyrir starfsstöðvar HVE. Steinunn Sigurðardóttir er helsta hvatamanneskjan að stofnun Hollvinasamtakanna og formaður frá upphafi í janúar 2014. Náði hún strax að safna öflugum hópi fólks sem lýsti sig reiðubúið til að styðja við hollvinasamtök um heilbrigðisstofnun í landshlutanum. Fram kom í máli Steinunnar að félagið hafi á þessum átta árum náð að safna 102 milljónum króna, miðað við verðlag í maí á þessu ári. Fyrir söfnunarféð hafa m.a. verið keypt lækninga- og vöktunartæki auk þrjátíu fullbúinna sjúkrarúma. Allt starf samstakanna er unnið í sjálfboðavinnu og félagar eru nú 281 talsins af öllu starfssvæði HVE. Auk stuðnings þeirra í formi árgjalda hafa fjölmörg fyrirtæki, félagasamtök, sveitarfélög og einstaklingar lagt félaginu lið með ýmsum hætti frá stofnun.\r\n\r\nÁ aðalfundinum hættu þrír stjórnarmenn sem verið hafa frá stofnun, þau Róbert Jörgensen, Sigríður Eiríksdóttir og formaðurinn Steinunn Sigurðardóttir. Nýr formaður Hollvinasamtakanna var kosinn Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akranesi. Jafnframt urðu nokkrar breytingar á fulltrúaráði félagsins sem er nokkurs konar bakland stjórnar og skipað fulltrúum af öllu starfssvæðinu.",
  "innerBlocks": []
}
Hollvinasamtökin hafa safnað á annað hundrað milljónum - Skessuhorn