
Henrik Otterberg, doktor í Thoreau-fræðum, og Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu. Ljósm. vaks.
Ráðstefna um rithöfundinn Thoreau hafin í Snorrastofu
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í morgun hófst þriggja daga ráðstefna um ameríska rithöfundinn Henry David Thoreau í Snorrastofu í Reykholti. Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu, og Henrik Otterberg, doktor í Thoreau-fræðum, litu við á skrifstofu Skessuhorns fyrr í vikunni til að segja blaðamanni frekari deili af Thoreau en saman standa þeir að því að skipuleggja viðburðinn.\r\n\r\n,,Henry Thoreau var fæddur 1817 í smábæ nálægt Boston. Hann var ekki hátt metinn þegar hann lifði en í dag er hann þekktur sem rithöfundur á sviði stjórnmála, heimspeki, sögu, trúarmála og fleiri sviða, einnig má segja að hann hafi verið aðgerðasinni. Hann velti fyrir sér málum sem koma okkur mikið við í dag t.d. vistspor, núvitund, flokkun og neysluhyggja. Frægasta bókin eftir hann heitir „Walden: Lífið í skóginum,“ en árið 2017 kom hún út á íslensku í fyrsta skipti en þá voru 200 ár liðin frá fæðingu rithöfundarins. Bókin hlaut svo verðlaun fyrir best þýddu bókina það árið. Íslendingar þekkja Thoreau ekki vel en margir segja hann þekktasta rithöfund Bandaríkjanna og langar okkur þess vegna að kynna þennan merka mann betur fyrir Íslendingum,“ segja þeir Bergur og Henrik en margir bandarískir rithöfundar og fræðimenn draga innblástur sinn frá Thoreau.\r\n\r\n<strong>Mikill áhugamaður um Snorra Sturluson</strong>\r\n\r\nHugmyndin að ráðstefnunni kom þegar Bergur var staddur í Gautaborg þar sem hann sótti um að komast í stjórn Thoreau félagsins. ,,Ég kom þá með hugmyndina að ráðstefnunni og Henrik kom með þá tillögu að halda ráðstefnuna í Snorrastofu,“ segir Bergur en þeir félagar hafa þekkst í 26 ár. Blaðamaður spurði af hverju málstofa um þennan rithöfund væri haldin í Snorrastofu. Þeir Bergur og Henrik segja að Thoreau hafi verið mikill áhugamaður um Snorra Sturluson. Hann hafi lesið Snorra-Eddu og Heimskringlu ítarlega og dregið innblástur frá skrifum Snorra, en á tímum Thoreau höfðu sögur Snorra Sturlusonar nýlega verið þýddar yfir á ensku. ,,Í Snorrastofu einblínum við á það hvernig verk Snorra hafa verið nýtt í gegnum aldirnar. Snorri lifir til dæmis í gegnum rithöfunda, bíómyndir og óperur en núna er komin tími til að kynna þennan tiltekna rithöfund og sjá meðal annars hvernig Snorri lifir í gegnum hann,“ segir Bergur.\r\n\r\n<strong>37 fyrirlestrar frá tíu löndum</strong>\r\n\r\nMálstofan er öllum opin án aðgangseyris en stendur hún yfir föstudags. Fyrirlestrarnir verða 37 talsins en fyrirlesarar koma frá tíu löndum, þó mestmegnis frá Bandaríkjunum. ,,Heiti ráðstefnunnar er ,,Thoreau á síðustu stundu“ svo fyrirlestrarnir verða fjölbreyttir á sviði mála sem eiga vel við í dag eins og hlýnunar jarðar. Við vildum þema sem gæti boðið upp á fjölbreytileika. Þrír eða fjórir fyrirlestrar og viðburðir verða í gangi í einu svo fólk þarf að velja og hafna hvað það vill kynna sér hverju sinni, svolítið eins og stór tónlistarhátíð, en við erum einnig búin að skapa rými á dagskránni fyrir spjall svo hægt sé að ræða saman um efnið. Svo ætlum við að bjóða fólki með okkur í skoðunarferð um nærumhverfið þegar ráðstefnunni verður lokið,“ segir Henrik. Bergur bætir svo við að lokum: „Það er líka mjög mikilvægt fyrir okkur að vera að fá þetta flotta fræðifólk allsstaðar að úr heiminum en allir eru að koma til Íslands á sinn kostnað svo þetta er bara mikill áhugi sem liggur að baki komu fólksins hingað til okkar.“",
"innerBlocks": []
}