
Guðmundur Tyrfingsson var öflugur gegn Sindra, skoraði eitt mark og lagði upp tvö fyrir ÍA. Ljósm. úr safni/ kfía
Skagamenn komnir áfram í Mjólkurbikarnum eftir sigur á Sindra
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Sindri og ÍA mættust í gær í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla og fór leikurinn fram á Höfn í Hornafirði. Jón Þór Hauksson þjálfari Skagamanna gerði fimm breytingar á liði ÍA frá síðasta leik og þar fékk meðal annars markvörðurinn Árni Marinó Einarsson sitt fyrsta tækifæri í sumar. Sindri sem leikur í þriðju deild komst óvænt yfir strax á níundu mínútu með marki frá Abdul Bangura og það var ekki fyrr en fimm mínútum fyrir hálfleik sem Skagamenn jöfnuðu með marki frá Steinari Þorsteinssyni og því jafnt á með liðunum í hálfleik, 1-1.\r\n\r\nÞað lifnaði vel yfir leiknum í seinni hálfleik og var mikið fjör á báða bóga. Sindri komst aftur yfir eftir átta mínútna leik með marki Ibrahim Barrie en tíu mínútum síðar varð Gunnar Orri Aðalsteinsson fyrir því óláni að skora sjálfsmark og staðan orðin 2-2. Kaj Leó Í Bartalstovu kom Skagamönnum yfir á 67. mínútu eftir fyrirgjöf frá Guðmundi Tyrfingssyni og hann tvöfaldaði síðan forystuna fyrir ÍA á 79. mínútu. Sindramenn voru ekki á þeim stuttbuxunum að gefast upp og Ivan Eres minnkaði muninn í 3-4 tveimur mínútum síðar og spenna komin í leikinn enn á ný. En það var Gísli Laxdal Unnarsson sem tryggði sigur ÍA með góðu marki fjórum mínútum fyrir lokaflautið eftir sendingu frá títtnefndum Guðmundi, lokastaðan 3-5 fyrir gestina.\r\n\r\nSkagamenn hafa því tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins sem verða dagana 26. og 27. júní næstkomandi. Dregið verður í næstu umferð mánudaginn 30. maí í höfuðstöðvum KSÍ og hefst drátturinn klukkan 12.",
"innerBlocks": []
}