Fanndís Huld og Rain Maison á jarðgerðarhátíð. Ljósm. Eiríksstaðir.

Víkingahátíð á Eiríksstöðum um næstu helgi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Eiríksstaðir í Haukadal og víkingafélagið Rimmugýgur taka höndum saman og halda hátið, tileinkaða fornleifatilraunum um næstu helgi. Í tilkynningu vegna viðburðarins segir að ætlunin sé að prófa að vinna með mat og klæði, prófa bragðlaukana á fornum mat, lita ull í pottum og búa svo til úr henni eitthvað skemmtilegt með þeim aðferðum sem þá voru þekktar.\r\n\r\n„Hvað telst til matar er mögulega eitthvað allt annað á 10. öld en núna. Njóli og sýrt smjör eru dæmi um það sem við ætlum að prófa að smakka og bjóða fólki að fá líka. Ætlunin er að búa til pylsur og reykja næstu vikur í strompinum á Eiríksstöðum og okkur langar að vita hvernig þangaska virkar, bragðast og lítur út í samhengi við mat, en þang-aska hefur stundum fundist við fornleifauppgreftri. Kannski var hún alls ekki notuð við matargerð, en hluti af því að vinna með kenningar er að prófa þær. Gestir geta steikt sér brauð yfir eldi og smakkað mismunandi brauð,“ segir í tilkynningu.\r\n\r\n<strong>Gestir taka þátt</strong>\r\n\r\nKlæði er hinn vinkillinn á hátíðinni, þ.e. litun, spuni og saumaskapur, en þar er ýmsum spurningum ósvarað um litunaraðferðir. „Hvaða jurtir voru notaðar, hvernig litunarílát geta haft áhrif og svo spurningin um á hvaða stigi á að lita ullina; áður hún er spunnin, þegar hún er orðin að garni eða hreinlega að tilbúnum fatnaði. Við ætlum að spinna frjálst í þessum tilraunum og bjóða fólki að taka þátt og prófa.\r\n\r\nÞegar Rimmugýgur er annars vegar má síðan ganga að því að það verður hægt að prófa að handleika boga og örvar, spjót og axir og prófa að kasta í mark. Einnig verður glímusýning á sunnudeginum og hægt að prófa glímu, vonandi fáum við líka að sjá bardaga, en allt í góðu samt. Það verður hægt að sjá hvernig silfurpeningar voru búnir til og fá að prófa að slá mynt, prófa að tálga og búa til glerperlufestar. Einnig að lesa og skrifa rúnir. Gestir geta heimsótt Eirík rauða eða Þjóðhildi í langhúsinu, en við minnum á að Eiríkur er þekktur fyrir að vera svolítið uppstökkur maður, þannig að það borgar sig að fara vel að honum.“\r\n\r\n<strong>Hnefatafl</strong>\r\n\r\nÍslandsmeistaramótið í Hnefatafli fer fram og verður Íslandsmeistari krýndur í lok þess. „Síðast en ekki síst má nefna að í tengslum við hátíðina er ætlunin að bjóða stutt námskeið þar sem fólk prófar að skrautmála handrit á þann hátt sem handritin voru máluð á miðöldum. Það fer fram á Vínlandssetri í Búðardal, þar sem er aðeins hlýrra og notalegra heldur en í tjaldbúðunum á Eiríksstöðum. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Rain Mason og þar er takmarkaður nemendafjöldi, þótt Eiríksstaðir taki lengi við.\r\n\r\nHátíðin fer fram frá klukkan 10 til 16 bæði laugardag og sunnudag. Aðgangseyrir er 1200 krónur, gildir báða dagana og frítt inn fyrir 12 ára og yngri. Líka fyrir þá sem koma í fullum víkingaskrúða.“",
  "innerBlocks": []
}