
Valgerður Jónsdóttir, tónlistarkona. Ljósm. Sigtryggur Ari Jóhannsson.
Bæjarlistakona Akraness kveður titilinn með tónleikum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Valgerður Jónsdóttir tónlistarkona hefur síðastliðið ár borið titilinn bæjarlistamaður Akraness. Í tilefni þess að titillinn mun nú brátt færast á nýjan listamann eða -konu mun Valgerður standa fyrir tónleikaviðburði í Tónlistarskóla Akraness í dag, fimmtudaginn 26. maí, uppstigningadag, milli klukkan 13 og 15:30. Valgerður mun koma fram ásamt hljómsveit samansettri af samstarfsfólki hennar úr tónlistinni ásamt Skólakór Grundaskóla og Karlakórnum Svönum.\r\n\r\nValgerður mun flytja fjölbreytta tónlist eftir sjálfa sig á tónleikunum m.a. af kynningarplötu sem koma mun út í sömu viku. Viðburðurinn mun fara fram í þremur atrennum og geta gestir og gangandi komið og farið af vild yfir fyrrnefnda tímasetningu en boðið verður upp á nammi og svaladrykk á meðan á tónleikunum stendur. Enginn aðgangseyrir er inn á viðburðinn en tekið verður við frjálsum framlögum þar sem ágóði mun renna til Ljóssins, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þess.",
"innerBlocks": []
}