Meirihlutaviðræður ganga vel á Akranesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í kvöld klukkan 20 hefur verið boðað til funda í flokksfélögum Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks á Akranesi. Þessi flokkar ákváðu síðastliðinn föstudag að hefja formlegar viðræður um myndun meirihluta í bæjarstjórn. Að sögn Lífar Lárusdóttur oddvita Sjálfstæðisflokks hafa viðræður gengið vel síðustu daga. Í kvöld stendur til að bæjarfulltrúar leggi drög að meirihlutasamstarfi flokkanna undir flokksfélögin til ákvörðunar um framhaldið. Ef lögð verður blessun yfir það má búast við að formlegur meirihluti á Akranesi gæti orðið til næstkomandi föstudag.",
  "innerBlocks": []
}
Meirihlutaviðræður ganga vel á Akranesi - Skessuhorn