
Lárus Guðjónsson hefur verið ráðinn í starf húsumsjónarmanns í Grundaskóla á Akranesi. Húsvarðarstarf í Grundaskóla var lagt niður fyrir um áratug vegna skipulagsbreytinga hjá Akraneskaupstað en nú hefur verið ákveðið að endurvekja þetta starf í skólanum. Húsumsjónarmaður mun einnig sinna þjónustu við leikskólana Garðasel og Akrasel. Lárus mun hefja störf í Grundaskóla í byrjun júní.Lesa meira








