
Steinar Þór, Hafsteinn Garðarsson hafnarstjóri og Eyþór Garðarsson. Ljósm. grundarfjordur.is
Veruleg aukin umsvif í Grundarfjarðarhöfn
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Landaður afli í Grundarfjarðarhöfn árið 2021 var 23.677 tonn og jókst um tæplega þriðjung frá árinu 2020 þegar ársaflinn var 18.482 tonn. Í janúar til mars á þessu ári var landað rétt tæpum níu þúsund tonnum í Grundarfjarðarhöfn og jókst landaður afli um ríflega 60% frá sama tímabili árið 2021, þegar landað var um 5.500 tonnum.\r\n\r\nSumarið 2022 hafa verið bókaðar 43 komur skemmtiferðaskipa í Grundarfjarðarhöfn og eru í þeim hópi mun fleiri stærri skip en áður hafa komið. Fram kemur á vef Grundarfjarðarbæjar að aukning í löndun afla og auknar komur stærri skemmtiferðaskipa helgast að verulegi leyti af bættri hafnaraðstöðu með 130 metra lengingu Norðurgarðs og auknu athafnarými á hafnarsvæðinu.\r\n\r\nSíðari hluta maímánaðar mun Grundarfjarðarhöfn taka upp breytt vinnufyrirkomulag starfsmanna sem kemur til vegna verulega aukinna umsvifa á höfninni. Steinar Þór Alfreðsson var nýlega ráðinn til starfa vegna þessa á höfninni en hann er lærður húsasmiður. Steinar Þór er með 30 tonna skipstjórnarréttindi, hefur stundað eigin trilluútgerð og starfað síðastliðin tólf ár sem flutningabílstjóri hjá Ragnari og Ásgeiri í Grundarfirði.",
"innerBlocks": []
}