Byrjunarlið Kára í leiknum gegn Víkingi Ó. Ljósm. af facebook síðu Kára.

Kári kominn í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir sigur á Víkingi Ó

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Knattspyrnufélagið Kári tók á móti nágrönnum sínum af Snæfellsnesinu, Víkingi Ólafsvík, í 2. umferð Mjólkurbikars karla í gær og fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. Um sannkallaðan Vesturlandsslag var að ræða en í boði var sæti í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Spennustigið var því hátt í leiknum og það dró strax til tíðinda á 20. mínútu leiksins þegar Nikulás Ísar Bjarkason slapp inn fyrir vörn Víkings en var felldur af varnarmanni Víkings. Dómari leiksins, Þorvaldur Árnason, mat það þannig að varnarmaður Víkings, Arnór Siggeirsson, hefði rænt af Nikulási marktækifæri og gaf Arnóri beint rautt spjald. Eftir þetta tóku Káramenn öll völd á vellinum, sóttu af miklum krafti en náðu ekki að skora og staðan í hálfleik markalaus, 0-0.\r\n\r\nKáramenn komu afar ákveðnir til leiks í seinni hálfleik og fyrsta mark leiksins kom eftir aðeins tíu mínútna leik þegar Arnar Már Kárason vippaði laglega yfir markmann Víkings. Sex mínútum síðar bættu Káramenn við öðru marki þegar Hafþór Pétursson spyrnti boltanum í netið eftir að Nikulás Ísar hafði skallað boltann í slána og út í teiginn. Staðan 2-0 fyrir Kára og þeir héldu áfram að sækja án árangurs en fimm mínútum fyrir leikslok náði Emmanuel Eli Keke að minnka muninn fyrir Víking eftir vandræðagang í vörn Kára. Mikil barátta var á milli liðanna það sem eftir lifði leiks en fleiri urðu mörkin ekki og lokaniðurstaðan 2-1 sigur Kára. Frábær sigur hjá Kára en að sama skapi mikil vonbrigði lærisveina Guðjóns Þórðarsonar sem leika í 2. deild, einni deild ofar en Kári á Íslandsmótinu í sumar.\r\n\r\nKári er því kominn í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins og verður í pottinum þegar liðin tólf í efstu deild karla, Bestu deildinni, bætast við í hann ásamt þeim 20 liðum sem hafa tryggt sér sæti þar eftir leiki í fyrstu og annarri umferð. Spennandi verður að fylgjast með því hverjir verða andstæðingar Kára og ÍA en dregið verður í næstu umferð fimmtudaginn 28. apríl næstkomandi.",
  "innerBlocks": []
}
Kári kominn í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir sigur á Víkingi Ó - Skessuhorn