{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Fjölskyldumessa í samstarfi við Skátafélag Akraness var í Akraneskirkju fyrsta sumardag, síðastliðinn fimmtudag. Að sögn sr. Þóru Bjargar Sigurðardóttur hófst dagskráin með skrúðgöngu frá Tónlistarskólanum og að kirkjunni. Þar var stutt fjölskyldustund og mikið sungið. Hoppukastali og pylsur voru í boði á Bjargarsteinslóðinni við Vinaminni. Á þriðja hundrað gestir mættu og var mikil og góð hátíðarstemning, að sögn sr. Þóru Bjargar. Ljósmyndina, frá því skrúðgangan nálgaðist kirkjuna, tók Anna Kristjánsdóttir.",
"innerBlocks": []
}
Fjölskyldu- og skátamessa í sumarbyrjun - Skessuhorn