
Nýja viðbygging leikskólans Bakka í Stykkishólmi. Ljósm. stykkisholmur.is
Ný viðbygging við leikskólann í Stykkishólmi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Ný viðbygging við leikskólanna í Stykkishólmi hefur verið tekin í notkun en síðasta föstudagsmorgun mættu foreldrar með börnin sín á nýja Bakka. Að sögn leikskólastjóra var ekki annað að sjá en að börnin væru glöð með nýtt umhverfi enda búin að fylgjast grannt með framvindu byggingarinnar undanfarna mánuði.\r\n\r\nFram kemur á vefsíðu Stykkishólmsbæjar að vegna heimsfaraldursins hefðu verklok dregist á Bakka þar sem innréttingar og fleira skilaði sér seint úr flutningum. Enn eru minni háttar atriði sem eftir á að ganga frá innanhúss auk þess að ljúka við klæðningu hússins. Þá er einnig frágangur á lóð eftir.\r\n\r\nViðbyggingin er 72 fermetrar og hýsir nú 13 börn en nokkur eiga eftir að bætast við hópinn og verða alls 19 börn á Bakka. Í sumar verða 92 börn á leikskólanum í Stykkishólmi. Aldrei hafa verið svo mörg börn í skólanum síðan hann flutti úr húsnæði St. Franciskusspítala í nýtt húsnæði við Búðanesveg.\r\n\r\nNæstkomandi föstudag, 29. apríl, verður opinn dagur í leikskólanum. Þá bjóða börnin foreldrum og forráðamönnum í heimsókn á milli klukkan 14 og 16 og gefst þá kostur að skoða Bakka.",
"innerBlocks": []
}