Þjóðleikhúsið frumsýnir Prinsinn í Frystiklefanum í Rifi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Næstkomandi miðvikudag frumsýnir Þjóðleikhúsið, í samstarfi við Frystiklefann í Rifi, nýtt íslenskt leikrit; Prinsinn, eftir Maríu Reyndal og Kára Viðarsson. Verkið er byggt á sönnum atburðum en það er byggt á reynslu Kára sem horfðist í augu við það sautján ára gamall að eiga von á barni. „En hversu áreiðanlegt vitni er maður í sinni eigin sögu? Er hægt að muna hlutina rétt,“ eru spurningar sem settar eru fram. María Reyndal leikstýrir verkinu, en auk Kára fara með hlutverk í sýningunni þau Sverrir Þór Sverrisson (Sveppi), Sólveig Guðmundsdóttir og Birna Pétursdóttir. Frumsýnt verður í Rifi og í framhaldinu verður sýnt víðar um land.\r\n\r\nUm sýninguna segir: „Prinsinn er alveg örugglega langbesta sjoppan undir Jökli, og það er þar sem hlutirnir gerast, að nóttu sem degi – sérstaklega ef maður vinnur í sjoppunni og er með lyklana! Í verkinu kynnumst við manni á fertugsaldri sem bíður í ofvæni eftir því að barn hans komi í heiminn. Eftirvænting og kvíði takast á í huga hans, og atburðir sem áttu sér stað tveimur áratugum fyrr fara að sækja á hann: 17 ára menntaskólastrákur er staddur á Laugaveginum ásamt vini sínum þegar síminn hringir. Sæta stelpan sem vinnur á Prinsinum er í símanum. „Ég er ólétt. Þú ert að verða pabbi.“ Hvernig getur maður orðið pabbi sautján ára, og mamman bara sextán? Er framtíðin í rúst?“ Verkið er hjartnæmt og fyndið nýtt íslenskt leikrit, sem talar beint til okkar, segir í lýsingu Þjóðleikhússins.\r\n\r\nAlls verður Prinsinn sýndur á sjö stöðum víðs vegar um landið áður en sýningar hefjast í Þjóðleikhúsinu í haust. Sýningarnar í Rifi verða 27., 28. og 29. apríl. Þá verður farið á flakk með sýninguna og m.a. sýnt í Hjálmakletti í Borgarnesi 12. maí.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"52785,52786\"]",
  "innerBlocks": []
}