
Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmálaráðherra heilsar upp á úkraínsk mæðgin. Í bakgrunni má sjá Margréti Jónsdóttur Njarðvík, rektor Háskólans á Bifröst. Ljósm. Háskólinn á Bifröst.
Um níutíu flóttamenn komnir á Bifröst
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Um miðja síðustu viku voru 63 flóttamenn frá Úkraínu komnir með búsetu á Bifröst í Borgarfirði og von var á 20-25 mönnum til viðbótar síðastliðinn föstudag. Hópurinn telur því hátt í níutíu manns. Á síðasta vetrardag komu Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmálaráðherra í heimsókn og ræddu við fólkið á staðnum. Á heimasíðu Háskólans á Bifröst kemur fram að gestirnir hafi fengið höfðinglegar móttökur. Guðni forseti hafði boðað komu sína á Bifröst til að heilsa upp á flóttafólkið og þá sem haft höfðu veg og vanda af undirbúningi móttöku þess. „Boðið var upp á kaffi og kökur í Kringlunni. Var gestunum vel fagnað og er óhætt að segja að glatt hafi verið á hjalla,“ segir í frétt frá skólanum.\r\n\r\nNýir heimamenn á Bifröst gripu tækifærið og sýndu forseta og félagsmálaráðherra þá aðstöðu sem komið hefur verið upp á staðnum. Hefur m.a. verið sett upp virkniherbergi með leikaðstöðu fyrir börn og lítil kennslustofa. Þá hefur verið opnuð birgðastöð, en þangað geta íbúarnir frá Úkraínu sótt eftir þörfum í gjafavarning ýmiss konar, sem spannar allt frá smærri búsáhöldum og leikföngum, að spilum, fötum, teppum og skrautmunum.\r\n\r\nUm bráðabirgðahúsnæði er að ræða fyrir hópinn á Bifröst, en hópurinn samanstendur af fólki af báðum kynjum og á öllum aldri, þó aðallega konum, börnum og ungu fólki. Þar mun hópurinn dvelja meðan verið er að greiða götu þess varðandi framtíðar búsetu hér á landi.",
"innerBlocks": []
}