{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Fuglaflensuveirur af gerðinni H5 greindust í átta sýnum af fimmtán sem tekin voru úr villtum fuglum í vikunni sem leið og rannsökuð voru á Tilraunastöð HÍ að Keldum. Í tilkynningu frá MAST kemur fram að fimm sýni voru með óljósa svörun og verða rannsökuð nánar, en í tveimur sýnum greindust ekki fuglaflensuveirur. Sýni sem tekin voru úr alifuglum á tveimur stöðum í síðustu viku voru öll neikvæð. Matvælastofnun ítrekar mikilvægi þess að fuglaeigendur verndi fugla sína gegn smiti. Af þeim átta sýnum sem reyndust jákvæð voru þrjú úr súlum sem fundust í Njarðvík og Grindavík, þrjú úr súlum á Búðum á Snæfellsnesi, eitt úr grágæs á Akureyri og eitt úr svartbak á Húsavík. Áður hafði veiran m.a. verið greind í grágæsum, súlum, hrafni og heimilishænum á Suðurlandi.",
"innerBlocks": []
}
Fuglaflensa að greinast víða um landið - Skessuhorn