Fréttir

true

Dósamóttakan opnuð á nýjum stað í Borgarnesi

Dósamóttaka Öldunnar opnaði í dag á nýjum stað í Borgarnesi og er starfsemin nú staðsett á Sólbakka 4. Opnunartími helst óbreyttur og er opið mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá klukkan 12.30 til 15. Fram kemur á vefsíðu Borgarbyggðar að einungis er tekið á móti sendingum sem búið er að flokka og telja. Því þarf að…Lesa meira

true

ÍA með stórsigur í Lengjubikarnum

ÍA tók á móti liði KH í riðli 2 í C deild kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. Um úrslitaleik var að ræða um sigur í riðlinum og öruggt sæti í úrslitum C deildar. Það var ljóst snemma hver tæki það sæti því Erla Karítas Jóhannesdóttir kom Skagastúlkum yfir strax…Lesa meira

true

„Ég brenn fyrir velferðarmálunum og vil búa í samfélagi án aðgreiningar“

Í byrjun síðustu viku var kynntur nýr framboðslisti fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 14. maí í Borgarbyggð þar sem Samfylking og Viðreisn stilltu fram sameiginlegum lista. Listann leiðir Bjarney Bjarnadóttir kennari við Grunnskólann í Borgarnesi. Bjarney er fædd og uppalin í Breiðholtinu, nánar tiltekið í bökkunum. Hún gekk í Breiðholtsskóla og svo í Fjölbrautaskólann í Breiðholti. „Ég er…Lesa meira

true

Skessuhorn verður degi fyrr í dymbilviku

Sökum páskanna sem framundan eru verður Skessuhorn prentað næstkomandi mánudag og gefið út á þriðjudegi, degi fyrr en venjulega. Það er gert til að blaðið berist í hendur áskrifenda í tæka tíð fyrir páska. Af þessum sökum er æskilegt að pantanir auglýsinga berist tímanlega, helst í síðasta lagi föstudaginn 8. apríl á netfangið auglysingar@skessuhorn.is  Aðsendar…Lesa meira

true

Kortavelta jókst mikið á síðasta ári

Heildar greiðslukortavelta á Íslandi nam rúmum 1.040 milljörðum króna árið 2021 og jókst um 12,6% á milli ára að raunvirði. Í samantekt Rannsóknaseturs verslunarinnar kemur fram að kortavelta Íslendinga hérlendis var 918,7 milljarðar kr. og jókst um 7,6% á milli ára að raunvirði. Kortavelta erlendra ferðamanna hér á landi nam tæpum 121,4 milljörðum kr. og…Lesa meira

true

Framsókn í Dölum stillir fram lista

B-listi, Framsókn og frjálsir í Dalabyggð, er stjórnmálaafl sem mun bjóða fram í sveitarstjórnarkosningunum 14. maí næstkomandi. Listinn var kynntur og samþykktur síðastliðið mánudagskvöld. Frá þessu er greint á FB síðunni „Framsóknarfélag Dala og Reykhóla“. Við síðustu kosningar var stuðst við persónukjör í Dalabyggð, en af því verður ekki þegar einn eða fleiri listar eru…Lesa meira

true

Erindi um keltneskan menningararf flutt í Búðardal

Þriðjudaginn 12. apríl verður haldinn fyrirlestur um keltnesk orð og örnefni í Nýsköpunar- og frumkvöðlasetri Dalabyggðar í Búðardal. Þar mun Þorvaldur Friðriksson, fornleifafræðingur og fyrrverandi fréttamaður, segja frá rannsóknum sínum á keltneskum arfi Íslendinga. Þorvaldur tekur t.d. fyrir spurninguna um merkingu nafnanna Ljárskóga, Fáskrúðs og Baulu. Ennfremur fer hann yfir rannsóknir sem gerðar hafa verið…Lesa meira

true

Myndarlega stutt við sýningu um sögu laxveiða í Borgarfirði

Fyrir hönd Ríkissjóðs hefur Safnaráð með höndum úthlutað styrkja til safna í landinu. Á þessu ári verður úthlutað styrkjum að upphæð 206,5 milljónum króna úr sjóðnum. Auk þess voru nýverið veittir fjórir svokallaðir öndvegisstyrkir en þeir fara til viðurkenndra safna og eru hærri fjárhæðir en aðrir styrkir sem Safnaráð úthlutar. Öndvegisstyrki hljóta að þessu sinni…Lesa meira

true

Dróni fastur í fjalli

Hringt var í Neyðarlínuna seint síðasta sunnudagskvöld þar sem tilkynnt var um hvítt ljós sem blikkaði á einkennilegum stað í Hafnarfjalli. Staðfesti lögregla ljósið sem blikkaði reglulega og var kannað hvort þyrla væri tiltæk. Landhelgisgæslan lét vita að enginn þyrla væri á lofti og fór því lögreglan að kanna málið betur. Þá var rannsóknadeild lögreglunnar…Lesa meira

true

Veturinn neitar að sleppa takinu

Samkvæmt dagatalinu er nú rúmlega hálfur mánuður eftir af vetrinum. Veðrið undanfarnar vikur og mánuði hefur verið rysjótt. Nú í morgun var svona umhorfs í Stykkishólmi. Engu líkara en veturinn neitaði að sleppa takinu. En hann gerir það þó að endingu. Myndina tók Sumarliði Ásgeirsson fréttaritari Skessuhorns í Stykkishólmi og Helgafellssveit.Lesa meira