
Horft frá Borgarnesi í átt að Hafnarfjalli. Ljósm. mm
Dróni fastur í fjalli
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Hringt var í Neyðarlínuna seint síðasta sunnudagskvöld þar sem tilkynnt var um hvítt ljós sem blikkaði á einkennilegum stað í Hafnarfjalli. Staðfesti lögregla ljósið sem blikkaði reglulega og var kannað hvort þyrla væri tiltæk. Landhelgisgæslan lét vita að enginn þyrla væri á lofti og fór því lögreglan að kanna málið betur. Þá var rannsóknadeild lögreglunnar á Vesturlandi kölluð út til að skoða þetta með dróna en ekki reyndist hægt að fljúga honum vegna veðurs. Óskað var aftur eftir útkalli þyrlu og fór rannsóknadeildin á staðinn. Þyrlan kom síðan á vettvang skömmu síðar og staðfest var að ljósið kæmi frá dróna sem var fastur í klettum í hlíðum fjallsins. Málið sem þykir alvarlegt er í rannsókn en eigandi drónans hefur ekki gefið sig fram.",
"innerBlocks": []
}