
Tíu af fjórtán fulltrúum á listanum. Ljósm. af FB síðu Framsóknarfélags Dala og Reykhóla.
Framsókn í Dölum stillir fram lista
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "B-listi, Framsókn og frjálsir í Dalabyggð, er stjórnmálaafl sem mun bjóða fram í sveitarstjórnarkosningunum 14. maí næstkomandi. Listinn var kynntur og samþykktur síðastliðið mánudagskvöld. Frá þessu er greint á FB síðunni „Framsóknarfélag Dala og Reykhóla“. Við síðustu kosningar var stuðst við persónukjör í Dalabyggð, en af því verður ekki þegar einn eða fleiri listar eru boðnir fram. Fram kemur á síðu Framsóknarfélags Dala og Reykhóla að unnið hafi verið að framboðslistanum frá opnum félagsfundi 8. mars sl. þar sem samþykkt var að fara fram með lista. „Stefnan við vinnuna var sú að tilkynna strax um ákvörðunina um framlagningu lista. Að sama skapi fagnar listinn öllum öðrum framboðum og hlakkar til samvinnu á nýju kjörtímabili. Göngum keik til kosninga með markmið um öflugri Dalabyggð,“ segir í færslu félagsins.\r\n\r\n<em><strong>B-listi Framsóknar og frjálsa í Dalabyggð er þannig:</strong></em>\r\n\r\nNr. 1. Eyjólfur Ingvi Bjarnason, bóndi\r\n\r\nNr. 2. Ingibjörg Þóranna Steinudóttir, reglugerðasérfræðingur\r\n\r\nNr. 3. Garðar Freyr Vilhjálmsson, mjólkurfræðingur\r\n\r\nNr. 4. Skúli H. Guðbjörnsson, bóndi\r\n\r\nNr. 5. Þuríður Jóney Sigurðardóttir, þjónustufulltrúi\r\n\r\nNr. 6. Guðlaug Kristinsdóttir, bókari\r\n\r\nNr. 7. Sindri Geir Sigurðarson, skólaliði\r\n\r\nNr. 8. Alexandra Rut Jónsdóttir, búvísundur\r\n\r\nNr. 9. Guðrún B. Blöndal, bóndi\r\n\r\nNr. 10. Pétur J. Óskarsson, eldri borgari\r\n\r\nNr. 11. Bjarnheiður Jóhannsdóttir, athafnakona\r\n\r\nNr. 12. Þórey Björk Þórisdóttir, bókari og bóndi\r\n\r\nNr. 13. Hermann Jóhann Bjarnason, flokksstjóri\r\n\r\nNr. 14. Baldvin Guðmundsson, fv. smiður og sjúkraflutningamaður.",
"innerBlocks": []
}