Sólbakki 4 þar sem dósamóttakan er nú til húsa. Lengst hýsti þetta hús starfsemi Eðalfisks.

Dósamóttakan opnuð á nýjum stað í Borgarnesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Dósamóttaka Öldunnar opnaði í dag á nýjum stað í Borgarnesi og er starfsemin nú staðsett á Sólbakka 4. Opnunartími helst óbreyttur og er opið mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá klukkan 12.30 til 15. Fram kemur á vefsíðu Borgarbyggðar að einungis er tekið á móti sendingum sem búið er að flokka og telja. Því þarf að hafa áldósir í sér poka, plastflöskur sér í poka og glerflöskur sömuleiðis.\r\n\r\nVakin er athygli á því að starfsmenn Öldunnar telja ekki sendingar á staðnum og taka ekki við óflokkuðum og ótöldum sendingum. Skilagjald verður greitt með millifærslu.",
  "innerBlocks": []
}
Dósamóttakan opnuð á nýjum stað í Borgarnesi - Skessuhorn