
Þorvaldur Friðriksson fornleifafræðingur. Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Erindi um keltneskan menningararf flutt í Búðardal
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Þriðjudaginn 12. apríl verður haldinn fyrirlestur um keltnesk orð og örnefni í Nýsköpunar- og frumkvöðlasetri Dalabyggðar í Búðardal. Þar mun Þorvaldur Friðriksson, fornleifafræðingur og fyrrverandi fréttamaður, segja frá rannsóknum sínum á keltneskum arfi Íslendinga.\r\n\r\nÞorvaldur tekur t.d. fyrir spurninguna um merkingu nafnanna Ljárskóga, Fáskrúðs og Baulu. Ennfremur fer hann yfir rannsóknir sem gerðar hafa verið á erfðaefni og leitt hafa í ljós að stór hluti landnámsmanna voru Keltar. Íslensk tunga er nokkuð keltnesku skotin og að því leyti ólík dönsku, sænsku og norsku. Sem dæmi um þetta má nefna orð eins og strákur, stelpa, æska, hrútur, gemlingur, kría og krummi. Ennfremur kemur þetta fram í heitum á algengustu matartegundum Íslendinga, í orðum eins og kæfa, bjúga, skyr og blóðmör. Örnefni á Íslandi eru sum óútskýranleg út frá skandinavísku, en auðskýrð út frá írsku og skosku. Inn í fyrirlestur Þorvaldar blandast einnig skemmtilegar upplýsingar um matarræði og sterka stöðu kvenna á Íslandi sem var öðruvísi hér en á hinum Norðurlöndunum og er hluti af keltneskum menningararfi Íslendinga. Fyrirlesturinn hefst klukkan 20.00 og er öllum opinn.",
"innerBlocks": []
}