Borgarfjarðarhérað er ríkt af sögu þegar laxveiði er annars vegar. Fjöldi fengsælla veiðiáa liðast um héraðið og því verða væntanlega hæg heimatökin í efnisvali á nýja sýningu um sögu laxveiða í héraðinu. Á meðfylgjandi mynd er Vala Árnadóttir með fallegan, nýgenginn hæng á Eyrinni í Norðurá. Heimilishundurinn fylgist spenntur með. Ljósm. úr safni Skessuhorns/áb.

Myndarlega stutt við sýningu um sögu laxveiða í Borgarfirði

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fyrir hönd Ríkissjóðs hefur Safnaráð með höndum úthlutað styrkja til safna í landinu. Á þessu ári verður úthlutað styrkjum að upphæð 206,5 milljónum króna úr sjóðnum. Auk þess voru nýverið veittir fjórir svokallaðir öndvegisstyrkir en þeir fara til viðurkenndra safna og eru hærri fjárhæðir en aðrir styrkir sem Safnaráð úthlutar. Öndvegisstyrki hljóta að þessu sinni Borgarbókasafnið, Listasafn Einars Jónssonar, Tækniminjasafn Austurlands og Landbúnaðarsafn Íslands á Hvanneyri. Alls fær safnið á Hvanneyri 11,5 milljónir króna, næsthæsta framlagið úr sjóðnum, en sú upphæð skiptist á næstu þrjú ár. Styrknum er ætlað að fjármagna uppsetningu á nýrri sýningu um sögu laxveiði í Borgarfirði. Í janúar síðastliðnum fékk safnið einnig styrk frá Uppbyggingarsjóði Vesturlands til sama verkefnis.\r\n\r\n„Núna getur Landbúnaðarsafnið farið að vinna að þessu mikilvæga verkefni sem fjallar um þá dýrmætu auðlind héraðsins sem laxveiðar eru og hafa verið,“ segir Ragnhildur Helga Jónsdóttir forstöðumaður Landbúnaðarsafns Íslands í færslu á síðu safnsins.",
  "innerBlocks": []
}
Myndarlega stutt við sýningu um sögu laxveiða í Borgarfirði - Skessuhorn