{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Heildar greiðslukortavelta á Íslandi nam rúmum 1.040 milljörðum króna árið 2021 og jókst um 12,6% á milli ára að raunvirði. Í samantekt Rannsóknaseturs verslunarinnar kemur fram að kortavelta Íslendinga hérlendis var 918,7 milljarðar kr. og jókst um 7,6% á milli ára að raunvirði. Kortavelta erlendra ferðamanna hér á landi nam tæpum 121,4 milljörðum kr. og jókst um rúm 75% á milli ára að raunvirði.",
"innerBlocks": []
}