Fréttir

true

Aðstoðarbankstjóri Arion yfir í Skeljung

Akurnesingurinn Ásgeir H. Reykfjörð Gylfason mun á næstu dögum láta af starfi aðstoðarbankastjóra Arionbanka. Iða Brá Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs bankans, hefur verið ráðin í hans stað. Fram kemur í tilkynningu til kauphallar að Ásgeir hafi verið ráðinn forstjóri Skel fjárfestingafélags hf. og mun ásamt Jóni Ásgeiri Jóhannessyni stjórnarformanni og aðaleiganda fyrirtækisins stýra uppbyggingu öflugs skráðs…Lesa meira

true

Frumsýningu í Grundaskóla frestað

Frumsýningu á söngleiknum Hunangsflugum og Villiköttum, sem átti að vera miðvikudaginn 6. apríl í Grundaskóla á Akranesi, hefur verið frestað til fimmtudagsins 21. apríl. Helmingur leikhópsins, eða um 15 til 20 manns, er með inflúensu og því varð ljóst að fresta þyrfti leiksýningunni.Lesa meira

true

Sjálfstæðisflokkurinn í Snæfellsbæ birtir framboðslista sinn

Framboðslisti D-listans í Snæfellsbæ fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 14. maí nk. var samþykktur samhljóða á fundi í fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna í Snæfellsbæ í gærkvöldi. Í síðustu bæjarstjórnarkosningum hlaut D-listinn fjóra bæjarfulltrúa af sjö og gefa þrír af þeim kost á sér áfram til forystu; þau Björn Haraldur, Júníana Björg og Auður. Bæjarstjóraefni D-listans er Kristinn Jónasson núverandi bæjarstjóri…Lesa meira

true

Kvenfélag Ólafsvíkur styrkir íbúðakjarnann

Kvenfélag Ólafsvíkur lætur sér annt um hina ýmsu starfsemi í bæjarfélaginu sínu, eins og svo mörg önnur félög. Hefur félagið í gegnum árin fært hinum ýmsu félögum og stofnunum góðar gjafir. Á síðasta mánudag færði félagið Þjónustuíbúðakjarna Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga í Ólafsvík 250 þúsund króna peningagjöf. Það var Jón Haukur Hilmarsson forstöðumaður íbúðakjarnans sem…Lesa meira

true

Bannað er að hafa blá blikkljós á vinnuvélum

Á þriðjudagsmorgunn í liðinni viku var lögreglan með eftirlit á Vesturlandsvegi þegar þeir sáu vinnuvél með blá blikkandi ljós. Stöðvuðu þeir ökumanninn og ræddu við hann. Viðkomandi vissi af þessum ljósum en taldi notkun þeirra ekki ólöglega. Fékk hann sekt upp á 20 þúsund krónur.Lesa meira

true

Nemastofa atvinnulífsins tekur til starfa

Nemastofa atvinnulífsins var formlega stofnuð síðastliðinn þriðjudag í húsnæði Iðunnar fræðsluseturs, að viðstöddum ráðherra, fulltrúum úr atvinnulífi og skólameisturum framhaldsskólanna. Nemastofa atvinnulífsins er í jafnri eigu Iðunnar og Rafmenntar fyrir hönd fyrirtækja og félagsmanna sem standa að viðkomandi félögum. Nemastofan verður samstarfsvettvangur samtaka í atvinnulífinu um bætt vinnustaðanám og fjölgun faglærðs starfsfólks. „Markmið með Nemastofu…Lesa meira

true

Hélt risabingó til stuðnings krabbameinsfélaginu

Tinna Ósk Grímarsdóttir og vinir hennar í Team Tinna á Akranesi stóðu fyrir fjölskyldubingói í sal FVA síðastliðinn fimmtudag. Sjálf hafði Tinna lagt nótt við dag við söfnun vinninga og annan undirbúning. Bauð hún vinahópnum sínum að mæta, en sá hópur er fjölmennur og því fullt út úr dyrum á bingóinu. Lalli töframaður var bingóstjóri…Lesa meira

true

Þjálfunarstjóranámskeið slökkviliðsmanna á Vesturlandi

Helgina 1. – 3. apríl var haldið umfangsmikið þjálfunarstjóranámskeið í Borgarnesi fyrir slökkviliðsmenn af Vesturlandi og víðar. Alls voru tuttugu slökkviliðsmenn frá Akranesi, Borgarnesi, Búðardal, Grundarfirði, Reykhólum, Snæfellsbæ, Stykkishólmi og Skagaströnd sem sátu námskeiðið sem samanstóð af bóklegum æfingum á föstudeginum og verklegum æfingum á laugardag og sunnudag. Markmiðið með námskeiðinu var að efla æfingar…Lesa meira

true

Leirá að gefa þrátt fyrir kuldatíð

Vorveiðin á sjóbirting er hafin en það er frekar kalt og verður áfram næstu daga. Veiðimenn þurfa því að klæða sig vel ætli þeir að halda til veiða. Þeir sem hafa reynt fyrir sér hafa margir  verið að fiska vel þrátt fyrir kuldann. „Já, það var kalt í fyrradag við Leirá, en við fengum fiska.…Lesa meira

true

Davíð hefur verið formaður kjörstjórnar síðan 1961

Davíð Pétursson á Grund í Skorradal hefur verið í kjörstjórn Skorradalshrepps í yfir sextíu ár. Hann mun einnig gegna því ábyrgðarstarfi í komandi sveitarstjórnarkosningum 14. maí og telst því vera einn reyndasti maður landsins á þessum vettvangi. Blaðamaður Skessuhorns spjallaði við Davíð af þessu tilefni. „Hreppstjórar voru á sínum tíma sjálfskipaðir formenn kjörstjórnar, bæði fyrir…Lesa meira