Bjarney Bjarnadóttir oddviti Samfylkingar og Viðreisnar í Borgarbyggð og hundurinn Rökkvi. Ljósm. arg.

„Ég brenn fyrir velferðarmálunum og vil búa í samfélagi án aðgreiningar“

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í byrjun síðustu viku var kynntur nýr framboðslisti fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 14. maí í Borgarbyggð þar sem Samfylking og Viðreisn stilltu fram sameiginlegum lista. Listann leiðir Bjarney Bjarnadóttir kennari við Grunnskólann í Borgarnesi. Bjarney er fædd og uppalin í Breiðholtinu, nánar tiltekið í bökkunum. Hún gekk í Breiðholtsskóla og svo í Fjölbrautaskólann í Breiðholti.\r\n\r\n„Ég er mjög stolt af þessum uppruna mínum,“ segir Bjarney brosandi þegar blaðamaður Skessuhorns kíkti í heimsókn til hennar fyrir helgi í fallegu húsi við Berugötu með útsýni yfir á Hafnarfjallið. Bjarni Lár, yngsti sonurinn á heimilinu, var að klára heimalesturinn á meðan tveir eldri voru að undirbúa sig fyrir helgarferð í burtu með mömmu sinni. Bjarney er gift Sigurkarli Gústavssyni lögregluþjóni og eiga þau samtals fjóra syni, en Sigurkarl á þrjá syni frá fyrra hjónabandi og búa tveir þeirra hjá þeim í Borgarnesi. Fjölskyldan flutti í Borgarnes árið 2019 til að flýja húsnæðismarkaðinn í Reykjavík og til að komast í friðsælla og rólegra umhverfi. Við fengum að kynnast Bjarneyju aðeins betur og ræddum um reynslu hennar af opinbera kerfinu, hvernig hún endaði sem kennari í Borgarnesi og hvernig hennar sýn er á Borgarbyggð til framtíðar.\r\n\r\n<em>Sjá Skessuhorn sem kom út í dag.</em>",
  "innerBlocks": []
}
„Ég brenn fyrir velferðarmálunum og vil búa í samfélagi án aðgreiningar“ - Skessuhorn