Fréttir

true

Grundarfjörður verður barnvænt sveitarfélag

Föstudaginn 11. mars 2022 bættist Grundarfjarðarbær í hóp þeirra sveitarfélaga sem vinna að því að verða barnvænt sveitarfélag. Á fundi sínum í janúar síðastliðnum ákvað bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar að innleiða verkefnið í starfsemi bæjarins. Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri og Ólafur Ólafsson íþrótta- og tómstundafulltrúi tóku þátt í kynningarfundi síðastliðinn föstudag fyrir barnvæn sveitarfélög á vegum UNICEF á…Lesa meira

true

Vetrarveður í dag og á morgun

Í dag og vel fram á morgundaginn verður hvöss suðvestan átt á landinu og gul viðvörun í gildi. Lægðinni fylgja dimm él. Spáð er yfir 20-23 m/s í verstu hryðjunum, skafrenningur og blint á flestum fjallvegum um vestanvert landið og sums staðar einnig á láglendi.Lesa meira

true

Þrjár af níu í stjórn Ungra athafnakvenna koma frá Akranesi

Félag Ungra athafnakvenna (UAK) var stofnað í maí 2014 og hefur það markmið að stuðla að jafnrétti og framþróun í samfélaginu. Á vef félagsins segir: „UAK vill gera allt sem í valdi félagsins stendur til að jafna stöðu kynja á íslenskum vinnumarkaði með því að styrkja stöðu og framtíð ungra kvenna sem stjórnendur og þátttakendur…Lesa meira

true

Vetrardagar hefjast í dag á Akranesi

Hátíðin Vetrardagar á Akranesi hefst í dag og verður fram á sunnudag. Hún var fyrst haldin árið 2016 og hefur undanfarin ár verið undir heitinu Írskir vetrardagar. Hátíðin var síðast haldin árið 2020 en var frestað í fyrra vegna faraldursins. Sýningin Hafið með Brynju Brynjars er í gangi á Bókasafni Akraness á opnunartíma og þá…Lesa meira

true

Stjórnmálasamtök þurfa að skrá sig fyrir kosningar

Ný kosningalög tóku gildi í byrjun þessa árs, lög nr. 112/2021. Lögin gilda um kosningar til sveitarstjórna sem fram fara laugardaginn 14. maí næstkomandi. Allnokkur nýmæli eru í lögunum. Meðal annars þau að þegar framboðslista er skilað til yfirkjörstjórnar skal honum fylgja staðfesting á skráðu heiti og listabókstaf nýrra stjórnmálasamtaka. Um skráningu stjórnmálasamtaka er fjallað…Lesa meira

true

Þriðjungur lögheimila í dreifbýli á Vesturlandi er með lélegt farsímasamband

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi, sendi fyrirspurn á Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 10. febrúar síðastliðinn þar sem hún spurði hversu mörg heimili í dreifbýli væru án eða með stopult farsímasamband. Í svari ráðherra í liðinni viku kom fram að 117 lögheimili í dreifbýli voru með lítið eða ekkert símasamband árið…Lesa meira

true

„Það eru spennandi tímar fram undan í Borgarbyggð“

Í síðustu viku kynnti Sjálfstæðisflokkurinn í Borgarbyggð framboðslista sinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Nýtt fólk á vettvangi sveitarstjórnarmála skipar efstu sæti listans fyrir utan oddvita hans, en Lilja Björg Ágústsdóttir verður áfram í forystu. Á þessu kjörtímabili hefur Sjálfstæðisflokkurinn skipað meirihluta í sveitarstjórn ásamt VG og Samfylkingu. Lilja Björg hefur setið í byggðarráði auk þess…Lesa meira

true

Snæfell tapaði gegn ÍR og missti af sæti í úrslitakeppninni

Snæfell lék gegn liði ÍR í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram á heimavelli ÍR, Hellinum, í Breiðholti. Með sigri í leiknum hefði Snæfell komist í úrslitakeppnina og einnig ef Stjarnan hefði unnið Hamar-Þór. Snæfell. Snæfell var eins og í leikjunum tveimur á undan án síns besta leikmanns, Sianni Martin,…Lesa meira

true

Upplestrarkeppni grunnskólanna á Akranesi í kvöld

Lokahátíð Upplestrarkeppni grunnskólanna á Akranesi fer fram í kvöld í Tónbergi og hefst klukkan 19.30. Við athöfnina munu tólf nemendur í 7. bekk sem valdir hafa verið úr Brekkubæjarskóla og Grundaskóla lesa sögur og ljóð. Viktoria Emilia Orlita mun lesa pólskan texta. Dómnefnd mun velja besta upplesara beggja skóla. Þá verða flutt tónlistaratriði af nemendum…Lesa meira

true

Venus kom að nýju með sama farminn

Venus NS, eitt af uppsjávarveiðiskipum Brims, kom í morgun til löndunar á Akranesi í annað skipti með sama farminn. Skipið kom á mánudaginn en þurfti frá að hverfa í fyrrinótt vegna súgs og óláta í Akraneshöfn. Venus þurfti að keyra skrúfur þegar reynt var að halda skipinu upp við bryggju, á meðan á dælingu stóð,…Lesa meira