Stjórnmálasamtök þurfa að skrá sig fyrir kosningar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Ný kosningalög tóku gildi í byrjun þessa árs, lög nr. 112/2021. Lögin gilda um kosningar til sveitarstjórna sem fram fara laugardaginn 14. maí næstkomandi. Allnokkur nýmæli eru í lögunum. Meðal annars þau að þegar framboðslista er skilað til yfirkjörstjórnar skal honum fylgja staðfesting á skráðu heiti og listabókstaf nýrra stjórnmálasamtaka. Um skráningu stjórnmálasamtaka er fjallað í lögum um starfsemi stjórnmálasamtaka nr. 162/2006, þar sem segir að ríkisskattstjóri skrái stjórnmálasamtök og starfræki stjórnmálasamtakaskrá.\r\n\r\nHyggist stjórnmálasamtök bjóða fram í sveitarstjórnarkosningunum 14. maí þurfa þau að vera skráð í stjórnmálasamtakaskrá. Allar upplýsingar um umsóknarferlið er að finna inn á vefsíðu ríkisskattstjóra. Á vef skattstjóra kemur fram að skráning í skrána sé valkvæð fyrir stjórnmálasamtök. Ætli samtök hins vegar að bjóða fram í kosningum er þeim skylt að vera skráð í stjórnmálasamtakaskrá.",
"innerBlocks": []
}
Stjórnmálasamtök þurfa að skrá sig fyrir kosningar - Skessuhorn