Þrjár af níu í stjórn Ungra athafnakvenna koma frá Akranesi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Félag Ungra athafnakvenna (UAK) var stofnað í maí 2014 og hefur það markmið að stuðla að jafnrétti og framþróun í samfélaginu. Á vef félagsins segir: „UAK vill gera allt sem í valdi félagsins stendur til að jafna stöðu kynja á íslenskum vinnumarkaði með því að styrkja stöðu og framtíð ungra kvenna sem stjórnendur og þátttakendur í atvinnulífinu. UAK vinnur að jafnrétti með fræðslu, umræðu og hvatningu. Með fjölbreyttum viðburðum fá félagskonur innsýn inn í ólíka upplifun kvenna út frá starfi þeirra og bakgrunni.“ Í félaginu eru konur með fjölbreyttan bakgrunn úr atvinnulífinu eða námi en engin inngönguskilyrði eru í félagið og ekkert aldurstakmark. Stjórn félagsins skipa níu konur hverju sinni og er kosið til tveggja ára í senn. Starfsárið 2021/2022 eru þrjár konur í stjórn frá Akranesi. Blaðamaður heyrði í þessum þremur konum og fékk smá innsýn í þeirra störf.\r\n\r\n<em>Í Skessuhorni vikunnar er rætt við þær Guðrúnu Valdísi Jónsdóttur, Ingu Maríu Hjartardóttur og Árnýju Láru Sigurðardóttur um störf þeirra og hvað Félag ungra athafnakvenna er þeim.</em>",
"innerBlocks": []
}
Þrjár af níu í stjórn Ungra athafnakvenna koma frá Akranesi - Skessuhorn