Frá undirritun 11. mars. Fulltrúar Grundarfjarðarbæjar, Múlaþings og Strandabyggðar, sem bættust í hóp sveitarfélaga sem vinna að því að verða Barnvæn sveitarfélög. Ljósm. af vef Grundarfjarðarbæjar.

Grundarfjörður verður barnvænt sveitarfélag

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Föstudaginn 11. mars 2022 bættist Grundarfjarðarbær í hóp þeirra sveitarfélaga sem vinna að því að verða barnvænt sveitarfélag. Á fundi sínum í janúar síðastliðnum ákvað bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar að innleiða verkefnið í starfsemi bæjarins. Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri og Ólafur Ólafsson íþrótta- og tómstundafulltrúi tóku þátt í kynningarfundi síðastliðinn föstudag fyrir barnvæn sveitarfélög á vegum UNICEF á Íslandi, sem hafa umsjón með verkefninu á landsvísu. Alls eru nú tuttugu sveitarfélög sem hafa hlotið staðfestingu sem Barnvænt sveitarfélög eða vinna að því. Þetta kemur fram á vefsíðu Grundarfjarðarbæjar.\r\n\r\nBarnvæn sveitarfélög er verkefni sem styður sveitarfélög við að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í alla sína stjórnsýslu og starfsemi. Verkefnið byggir á alþjóðlegu verkefni UNICEF, Child Friendly Cities Initiative (CFCI), sem hefur verið innleitt í þúsundum sveitarfélaga út um allan heim frá árinu 1996. Verkefnið byggir jafnframt á efni frá umboðsmönnum barna í Noregi og Svíþjóð og UNICEF í Finnlandi. UNICEF á Íslandi hefur umsjón með verkefninu en verkefnið er stutt af mennta- og barnamálaráðuneyti.\r\n\r\nSveitarfélög sem taka þátt og innleiða Barnasáttmálann hljóta viðurkenningu sem Barnvæn sveitarfélög þegar innleiðingu er lokið. Innleiðingarferlið tekur að minnsta kosti tvö ár og skiptist í átta skref sem sveitarfélag stígur með það að markmiði að virða og uppfylla réttindi barna. Sveitarfélögin munu þannig innleiða Barnasáttmálann með markvissum hætti í alla sína stjórnsýslu og starfsemi með stuðningi frá UNICEF á Íslandi.",
  "innerBlocks": []
}
Grundarfjörður verður barnvænt sveitarfélag - Skessuhorn