{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Hátíðin Vetrardagar á Akranesi hefst í dag og verður fram á sunnudag. Hún var fyrst haldin árið 2016 og hefur undanfarin ár verið undir heitinu Írskir vetrardagar. Hátíðin var síðast haldin árið 2020 en var frestað í fyrra vegna faraldursins.\r\n\r\nSýningin Hafið með Brynju Brynjars er í gangi á Bókasafni Akraness á opnunartíma og þá er opnun í dag á sýningunni Allskonar eftir Aldísu Petru í versluninni Model frá klukkan 11 til 22. Opnar vinnustofur eru á Ægisbraut 30 frá 13 til 17 alla Vetrardagana og þá er Vetrardagaopnun í dag á bókasafninu þar sem í boði er ratleikur fyrir börnin milli 13 og 17 og er frítt inn. Sýningin Where Are We Going með Tinnu Royal verður opin alla Vetrardagana á Byggðasafninu í Görðum milli 13 og 17 og þá verður Bjarni Þór með opna vinnustofu í dag milli klukkan 15 til 22 á Kirkjubraut 11.\r\n\r\nFimmtudagsopnun verður í Guðlaugu í dag milli 16 til 21. Leshringur verður í Bókasafni Akraness klukkan 16.15 og skömmu síðar verður Sögustund á pólsku milli klukkan 16.30 og 17 á sama stað.\r\n\r\nStyrktarsýning fyrir Úkraínu verður í Bíóhöllinni klukkan 20 og renna frjáls framlög til Rauða krossins og til kvikmyndagerðarfólks í Úkraínu. Heimildamyndin This Rain Will Never Stop eftir úkraínsku kvikmyndagerðarkonuna Alina Gorlova verður sýnd en myndin hefur hlotið fjölda verðlauna á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum. Hún fjallar um Andriy sem reynir að fóta sig í lífinu í miðju hörmulegra stríðsátaka.\r\n\r\nÞá er kvöldopnun í verslunum á Akranesi til klukkan 22 í kvöld og eru íbúar hvattir til að versla í heimabyggð og nýta sér góð afsláttarkjör.\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}