
Kristján Þórðarson bóndi á Ölkeldu í Staðarsveit reynir að ná farsímasambandi heima hjá sér. Ljósm úr safni.
Þriðjungur lögheimila í dreifbýli á Vesturlandi er með lélegt farsímasamband
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi, sendi fyrirspurn á Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 10. febrúar síðastliðinn þar sem hún spurði hversu mörg heimili í dreifbýli væru án eða með stopult farsímasamband. Í svari ráðherra í liðinni viku kom fram að 117 lögheimili í dreifbýli voru með lítið eða ekkert símasamband árið 2021 og 1.693 voru með slitrótt eða stopult símasamband.\r\n\r\n„[...] hyggst ráðherra fela Fjarskiptastofu og Neyðarlínunni að greina þessi lögheimili nánar með tilliti til þess hvort þau hafi aðgang að ljósleiðara eða þeim standi til boða að fá slíka tengingu í ár á grundvelli Ísland ljóstengt eða hvort Neyðarlínan hafi þegar gert úrbætur eða telji forsendur til að gera þar úrbætur á grundvelli útnefningar félagsins sem alþjónustuveitanda í fjarskiptum,“ segir í svari ráðherra. Þá segir einnig að ráðherra muni biðja Fjarskiptasjóði að fylgjast með þróun mála og meta forsendur fjárhagslegrar aðkomu sinnar að nauðsynlegum úrbótum ef önnur úrræði hafa verið fullreynd. „Með þessum hætti verður brugðist strax við gagnvart þeim lögheimilum um land allt sem standa líklega verst og þeim tryggt lágmarksfjarskiptaöryggi sem getur falist í öðrum sértækari, hagkvæmari og fljótlegri lausnum en að byggja frá grunni nýja fjarskiptastaði fyrir farnetssenda.“ Þá er einnig tekið fram að farsímaþjónusta sé ekki lögboðin þjónusta á lögheimilum landsins sem ríkinu beri að tryggja.\r\n\r\n<strong>Þriðjungur sveitabæja með lélegt samband</strong>\r\n\r\nSvarinu frá ráðherra fylgdi tafla sem sýndi sundurliðað hvernig símasamband væri í dreifbýli eftir póstnúmerum. Samkvæmt þeirri töflu eru 976 lögheimili í dreifbýli á Vesturlandi. Af þeim heimilum var 301 heimili með slitrótt farsímasamband árið 2021 og 22 heimili voru með lítið eða ekkert samband. Það eru því um 33% lögheimila í dreifbýli á Vesturlandi með ekkert eða stopult farsímasamband. Þetta er töluvert yfir landsmeðaltali en um 27% lögheimila í dreifbýli á landsvísu eru með ekkert eða stopult farsímasamband. Í Eyja- og Miklaholtshreppi og í Reykhólasveit eru yfir 50% lögheimila í dreifbýli með stopult símasamband. Í dreifbýli í Dölum eru rúmlega 40% lögheimila með stopult eða ekkert símasamband.",
"innerBlocks": []
}