
Lionsklúbbur Grundarfjarðar stóð fyrir sínu hefðbundna kútmagakvöldi síðasta laugardag. Vel var mætt enda kræsingarnar ómótstæðilegar. Þar mátti gæða sér á dásamlegri fiskisúpu, allskonar fiskréttum og að sjálfsögðu kútmögum sem voru hanteraðir eftir kúnstarinnar reglum. Sérlegir gestir kvöldsins voru Lionsklúbbur Kópavogs og var kátt á hjalla. Allt fiskmeti var frá G.Run og Soffaníasi Cecilssyni. Sjá fleiri…Lesa meira








