
Nemendahópur úr MB í nýju og litríku bolum skólans. Ljósm. glh.
Líf og fjör á opnu húsi um Alls-kyns í MB
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Líf og fjör ásamt uppbyggilegri fræðslu einkenndi liðna viku í Menntaskóla Borgarfjarðar. Allir nemendur skólans eru í áfanganum Alls-kyns sem er helgaður umfjöllun um kynlíf, kynhneigð og kynheilbrigði með áherslu á mikilvægi gagnkvæmrar virðingar í samskiptum fólks. Er þetta fyrsti áfanginn af fimm í Lífsnámi MB. Nemendur unnu í hópum að ákveðnum verkefnum sem tengdust þessum umfjöllunarefnum og fengu til sín marga gesti. Sigga Dögg kynfræðingur kom og spjallaði um kynlíf, María og Gísli frá lögreglunni komu og fræddu nemendur um stafrænt ofbeldi og loks kom Mars frá samtökunum ‘78 og var með fræðslu fyrir nemendahópinn. Hápunkturinn var svo á föstudaginn þegar dyrnar voru opnaðar fyrir gestum og gangandi og þeim boðið að koma á opið hús og sjá afrakstur vikunnar.\r\n\r\n<em>Sjá nánar í Skessuhorni vikunnar.</em>",
"innerBlocks": []
}